11.09.26 - 07:45
Elvar Geir Magnússon
Chelsea og Real hafa áhuga á Zubimendi - Farke framlengir við Leeds

Martin Zubimendi,

Mynd: EPA

Daniel Farke, stjóri Leeds.

Mynd: EPA

Mauro Icardi.

Mynd: EPA

Martin Zubimendi,

Mynd: EPA

Zubimendi gæti þrýst á að færa sig um set í næsta glugga, stjóri Leeds færist nær nýjum langtímasamningi og Mauro Icardi er orðaður við Everton. Eigið góða fótboltahelgi!
Martin Zubimendi (27) gæti þrýst á um að yfirgefa Arsenal í janúar eftir að hafa misst sæti sitt í byrjunarliðinu. Chelsea og Real Madrid hafa áhuga á þessum spænska miðjumanni. (Teamtalk)
Ánægja er hjá Leeds með störf Daniel Farke og það stefnir í að hann geri nýjan langtímasamning við félagið. (BBC)
Argentínski sóknarmaðurinn Mauro Icardi (33), sem er án félags, er opinn fyrir því að ganga til liðs við Everton eftir að hafa yfirgefið Galatasaray í júlí. (Teamtalk)
Heimildarmenn innan Everton hafa þó talað niður orðróma um að félagið gæti fengið Icardi og Anthony Martial (30), sem einnig er án félags. Franski sóknarmaðurinn lék síðast með mexíkóska liðinu Monterrey. (i Paper)
Liverpool hafði áhuga á ítalska varnarmanninum Marco Palestra (21) sem gekk síðar til liðs við Chelsea frá Atalanta, en félagið taldi sig frekar þurfa að styrkja sig í öðrum stöðum. (The Athletic)
Real Madrid hefur boðið tyrkneska miðjumanninum Arda Guler (21) nýjan sex ára samning. (Fabrizio Romano)
Ítalski varnarmaðurinn Giorgio Scalvini (22), sem er á óskalista Newcastle, hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Atalanta. (Fabrizio Romano)
Aston Villa á í viðræðum við hollenska vinstri bakvörðinn Ian Maatsen (24) um nýjan samning hjá félaginu. (Football Insider)
Sóknarmaðurinn Eddie Nketiah (27) sem leikur með Crystal Palace, íhugar að skipta um landslið og leika fyrir Gana í stað Englands. (The Standard)
Kólumbíski sóknarmaðurinn Kevin Viveros (26) er nálægt því að ganga frá nýjum samningi við brasilíska félagið Athletico Paranaense eftir að hafa vakið áhuga Sunderland og Aston Villa í sumar. (ESPN Brazil)