Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. júlí 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Real Madrid byrjar með kvennalið
Florentino Perez forseti Real Madrid.
Florentino Perez forseti Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur formlega sett kvennalið á laggirnar eftir að hafa fengið leyfi til að sameinast CD Tacon í kvennaflokki.

Real Madrid mun taka yfir CD Tacon en liðið vann sér sæti í spænsku úrvalsdeildinni í fyrra og endaði í tíunda sæti af sextán liðum í deildinni í ár.

Þetta mun formlega ganga í gegn 19. júlí næstkomandi.

„Það er kominn tími á að byggja upp lið sem við getum öll verið mjög stolt af," sagði Florentino Perez forseti Real Madrid.

Real Madrid mun nú reyna að styrkja sig og berjast við Barcelona um titilinn en Börsungar voru á undan Atletico Madrid í baráttunni um titilinn í ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner