Fotbolti.net
20.09.26 - 19:10
Sverrir Örn Einarsson

Sigurjón Rúnarsson: Alltof langt frí

Auglýsing
Sigurjón Rúnarsson

Sigurjón Rúnarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurjón Rúnarsson stóð vaktina sem fyrr í vörn Fram er liðið fór í heimsókn suður með sjó og heimsótti Keflavík á HS Orkuvöllinn. Lokatölur 2-2 í hörkuleik en Sigurjón var auðsjáanlega nokkuð svekktur með úrslitin þó að sanngjörn verði þau líklegast að teljast.
Lestu um leikinn: Keflavík 2 - 2 Fram
„Já niðurstaðan kannski sanngjörn svona að leikslokum. Við fáum færi þar sem við hefðum getað klárað þetta en Viktor bjargar okkur svo sem líka á köflum svo líklega sanngjarnt.“

Með sigri hefði Fram getað lyft sér upp í annað sæti deildarinar á undan KR. Næsti leikur Fram er einmitt gegn KR þar sem allt verður undir.

„Við ætluðum okkur að koma hingað og taka þrjú stig. Þetta eina stig gerir voðalega lítið fyrir okkur. En við verðum bara að mæta og klára KR og þá erum við komnir uppfyrir þá“

Framundan er hlé á Bestu deildinni vegna landsleikja en leikur Fram gegn KR er settur á þann 10.október næstkomandi. Hvernig leggst þetta hlé í Sigurjón?

„Þetta er alltof langt frí, en þessi tímapunktur fyrir mig sem er að fara í brúðkaup hentar vel annars væri ég að bölva þessu meira. En þetta er alveg galið fyrirkomulag og það má alveg fara að breyta þessu.“

Sagði Sigurjón en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.