20.09.26 - 19:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chris Brazell: Okkur að kenna en ekki fyrirkomulaginu
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur náði í stig gegn ÍBV með marki í blálokin. Fótbolti.net ræddi við Chris Brazell eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Valur
„Við vorum að einbeita okkur að því að standa okkur vel. Miðað við síðustu sjö leiki er þetta sætasti. Þetta er leikur sem við hefðum tapað fyrir nokkrum mánuðum, sem við gerðum einmitt (gegn ÍBV)," sagði Brazell.
Valur situr í 7. sæti og er búið að bjarga sér frá falli.
„Það er enn mikið undir hjá okkur. Við berum virðingu fyrir andstæðingnum. Við töluðum um það í klefanum að við vorum í þessari baráttu fyrir nokkrum dögum. Ef við værum eitt af þeim liðum myndum við vilja taka þessum leik alvarlega. Leikmenn eru að spila upp á framtíðina sína hjá félaginu eða annars staðar eða bæta sig. Við vilum ekki fara aftur á byrjunarreit og þurfum að standa okkur."
Fyrirkomulagið á Íslandsmótinu með tvískiptingu deildarinnar hefur verið mikið gagnrýnt.
„Ég er á báðum áttum með þetta fyrirkomulag. Ég skil af hverju fólk fílar það ekki. Við erum okkar verstu óvinir, við hefðum getað verið í topp sex ef við hefðum unnið síðustu tvo leikina. Ef liðin í efri helmingnum kvarta yfir því að Víkingur sé búið að vinna deildina þegar þrjár umferðir eru eftir, er það ekki þeim að kenna að þau voru ekki nær þeim. Það er ekki fyrirkomulaginu að kenna," sagði Brazell.
Brazell vill stækka deildina til að gefa liðum meira svigrúm til að þróast áfram.
„Aðalatriðið er að það er ekkert miðjumoð. Það er uppbyggingarár hjá Val og svo er lið eins og ÍBV sem er að reyna festa sig í sessi í efstu deild. Það er enginn millivegur, annað hvort ertu að berjast um Evrópusæti og hendir hellings pening í þetta í eitt ár. Eða þú gerir akkúrat öfugt og reynir að breyta til og þá ertu í fallbaráttu eins og KR var í fyrra. Ég er ekki viss um að fyrir stöðugleika og þróun félaga að þetta sé það besta," sagði Brazell.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Valur | 24 | -3 | 31 |
| 2 | Stjarnan | 24 | -9 | 31 |
| 3 | FH | 24 | -6 | 27 |
| 4 | KA | 24 | -13 | 23 |
| 5 | Þór | 24 | -34 | 21 |
| 6 | ÍBV | 24 | -15 | 19 |