Fotbolti.net
02.07.26 - 10:57
Elvar Geir Magnússon

Atvinnumaður í póker varð þjálfari á HM

Sergej Barbarez.

Sergej Barbarez.

Canon

Mynd: EPA

Bosnía og Hersegóvína er úr leik á HM eftir 2-0 tap gegn Bandaríkjunum í 32-liða úrslitum í nótt. Sergej Barbarez, landsliðsþjálfari Bosníu, hefur því kvatt mótið en hann er áhugaverður karakter sem er um að gera að kynnast aðeins nánar.

Áður en hann varð landsliðsþjálfari Bosníu var hann atvinnumaður í póker og komst oft á tíðum á lokaborð á stórmótum.

Barbarez var sóknarmaður á leikmannaferlinum og spilaði fyrir þýsku liðin Bayer Leverkusen, Hamborg og Borussia Dortmund. Hann lagði skóna á hilluna 2008 og gerðist atvinnumaður í póker.
HM: Tíu Bandaríkjamenn slógu Bosníu úr leik
TENGT EFNI

HM: Tíu Bandaríkjamenn slógu Bosníu úr leik

Meðfram því að spila póker var hann reglulegur sérfræðingur í sjónvarpssal yfir fótboltaleikjum, meðal annars í landsleikjum Bosníu þar sem hann vakti athygli fyrir skoðanir sínar.

Hann menntaði sig í þjálfun og lýsti því oft yfir að hann hefði áhuga á að taka við sem landsliðsþjálfari. Hann fékk svo kallið 2024, hans fyrsta þjálfarastarf var því landsliðsþjálfarastarf.

Barbarez brást ekki væntingum, kom Bosníu í umspilið fyrir HM þar sem liðið lagði Ítalíu og komst á stærsta sviðið.

Atvinnumaður í póker varð þjálfari á HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.