Fotbolti.net
02.07.26 - 02:06
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Tíu Bandaríkjamenn slógu Bosníu úr leik

HM: Tíu Bandaríkjamenn slógu Bosníu úr leik
Canon

Mynd: EPA

Bandaríkin 2 - 0 Bosnía
1-0 Folarin Balogun ('45)
2-0 Malik Tillman ('82)
Rautt spjald: Folarin Balogun, Bandaríkin ('64)
Heimamenn í landsliði Bandaríkjanna eru komnir áfram í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir góðan sigur á Bosníu og Hersegóvínu í nótt.

Bandaríkjamenn voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náði Folarin Balogun verðskuldaðri forystu skömmu fyrir leikhlé. Balogun var áður búinn að koma boltanum í netið en dæmdur rangstæður.

Síðari hálfleikurinn var talsvert jafnari og tókst hvorugu liði að skapa mikla hættu. Balogun fékk að líta beint rautt spjald fyrir hættulegt brot, sem var þó óviljaverk, á 64. mínútu og því þurftu heimamenn að klára leikinn manni færri.

Þeir spiluðu áfram vel og fundu gestirnir frá Bosníu engar glufur. Þess í stað fengu Bandaríkjamenn aukaspyrnu á hættulegum stað og skoraði Malik Tillman með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnunni.

Tillman tvöfaldaði þannig forystuna á 82. mínútu og fundu gestirnir engin svör. Lokatölur 2-0 fyrir Bandaríkin sem mæta Belgíu í 16-liða úrslitum.

Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Bandaríkin slá Evrópuþjóð úr leik í útsláttarkeppni HM.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.