Fotbolti.net
02.09.18 - 17:19
Kristófer Jónsson

Gunnar Már: Við höfum trú á verkefninu

Auglýsing
Gunnar Már stýrði liðinu í dag

Gunnar Már stýrði liðinu í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Már Guðmundsson stýrði liði Fjölnis í dag í fjarveru Ólafs Páls Snorrasonar en hann tók út leikbann í dag. Leikurinn endaði með 3-1 sigri Stjörnunnar.

<i>„Ég er fúll með niðurstöðuna en ánægður með spilamennskuna. Fyrri hálfleikurinn var góður og við sköpum okkur færi. Það hefur reynst okkur erfitt í sumar að skora mörk og það sýndi sig aftur í dag.\"</i> sagði Gunnar Már eftir leik.

Fjölnismenn sitja í ellefta sæti deildarinnar og eru fimm stigum frá öruggu sæti þegar að þrjár umferðir eru eftir og þarf því ansi mikið að gerast til þess að fall verði ekki niðurstaðan í Grafarvoginum.

<i>„Þetta tímabil er búið að vera gríðarleg vonbrigði þar sem að frammistaðan hefur verið góð þótt að niðurstaðan hefur yfirleitt verið vond. Þetta er búið að vera meira stöngin út heldur en stöngin inn.\"</i>

Gunnar Már segir að þótt að útlitið sé svart séu Fjölnismenn alls ekki búnir að gefast upp og ætla þeir sér að berjast fyrir veru sinni í deildinni.

„Við höfum trú á verkefninu. Það eru þrír leikir eftir og ég held að við getum tekið þá alla og það er bara það sem að við þurfum að gera.\" sagði Gunnar að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.