Fotbolti.net
15.07.26 - 13:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gunnar Örn kominn í KR

Gunnar Örn kominn í KR
Canon

Mynd: MHSAA

Markvörðurinn Gunnar Örn Þórhallsson hefur fengið félagaskipti í KR og fær á morgun heimild til að spila með liðinu. Hann gæti því verið í hóp gegn Stjörnunni á sunnudag.

Hann er fæddur árið 2008 og hefur verið í kringum liðið í sumar, en ekki á skýrslu.

Hann hefur verið að spila í Bandaríkjunum en var skráður í Breiðablik hér á landi.
KR fær ungan markmann frá Bandaríkjunum (Staðfest) - Kemur næsta sumar
TENGT EFNI

KR fær ungan markmann frá Bandaríkjunum (Staðfest) - Kemur næsta sumar

„Hann klárar framhaldsskóla úti núna í Bandaríkjunum næsta sumar. Eldri bræður hans hafa farið hingað heim í háskóla, haldið í ræturnar. Þegar það lá fyrir að hann ætlaði sömu leið þá var hann leikmaður sem við viljum fá. Þetta er gríðarlegt efni sem við hlökkum mikið til að fá. Hann er bara átján ára og hefur nægan tíma.“

„Við sjáum hlutverk Gunnars fyrst um sinn að vera koma inn í æfingahóp hjá meistaraflokki og vera svo annað hvort að spila með 2. flokki eða KV. Svo þurfum við að sjá hversu hratt hann lendir og hvar hann verður eftir næsta tímabil. Hann er maður sem við höfum mikla trú á,"
sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, við Fótbolta.net í janúar.
Gunnar Örn kominn í KR
Canon

Mynd: KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.