Fotbolti.net
15.07.26 - 13:43
Elvar Geir Magnússon

Bournemouth í viðræðum um portúgalskan varnarmann

Antonio Silva með boltann.

Antonio Silva með boltann.

Canon

Mynd: EPA

Bournemouth er í viðræðum við portúgalska félagið Benfica um möguleg kaup á portúgalska varnarmanninum Antonio Silva.

Silva er góður á boltann og er talinn öflugur kostur til að fylla skarð Marcos Senesi fór til Tottenham.

Þjóðverjinn Marco Rose er nýr stjóri Bournemouth og hefur áhuga á að fá Silva í leikmannahóp sinn.
Eftirsóttur miðvörður hafnar nýjum samningi
TENGT EFNI

Eftirsóttur miðvörður hafnar nýjum samningi

Silva, sem er 22 ára, er uppalinn hjá Benfica og hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í aðalliðinu.

Það kom nokkuð á óvart að miðvörðurinn skyldi ekki vera valinn í portúgalska landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið, enda er hann talinn einn efnilegasti varnarmaður þjóðarinnar.

Silva á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Benfica og hefur nú hafnað tilboði félagsins um framlengingu. Hann vill leita annað og Benfica íhugar því alvarlega að selja hann í sumar fremur en að eiga á hættu að missa hann frítt að ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.