Gunnar Magnús: Hvet alla Árbæinga til að fylla völlinn


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, var ánægður með fagmannlega frammistöðu síns liðs í dag. Liðið fékk FHL í heimsókn til sín í 4-0 sigri á Würth vellinum.
„Ég er virkilega sáttur heilt yfir með stelpurnar. Þetta er búið að vera erfitt, við erum búin að spila þrjá leiki á átta dögum.“
Gunnar gerði tvöfalda breytingu á 62. mínútu leiksins þegar staðan var 1-0 fyrir Fylki. Rúmlega átta mínútum síðan var Fylkir komið með 4-0 forystu.
„Við erum með góðan bekk og góða breidd. Við erum búin að spila mikið undanfarið og rétt að rúlla liðinu aðeins og dreifa álaginu á leikmenn. Þær komu frábærlega inn, Tinna og Marija.“
Fylkir kemur til með að spila gegn Grótta eftir viku í síðustu umferð deildarinnar á Vivaldi vellinum. Leikurinn er sannkallaður úrslitaleikur um sæti í Bestu deildinni þar sem bæði lið geta ennþá unnið sér sæti í deildinni.
„Þetta verður skemmtun og virkilega gaman að fara í svona leik og ég hvet alla Árbæinga til þess að fylla völlinn og hvetja stelpurnar.“



