Fotbolti.net
02.10.20 - 14:48
Magnús Már Einarsson

Erik Hamren: Ég hef ennþá jákvæðari tilfinningu

Auglýsing
Erik á fréttamannafundi í morgun.

Erik á fréttamannafundi í morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Það er gott að hafa reynslumikla leikmenn í svona leikjum," sagði Erik Hamren, landsliðsþjálfari, eftir að hann tilkynnti hópinn fyrir komandi leiki.

Ísland mætir Rúmeníu á fimmtudaginn í umspili um sæti á EM en eftir það taka við leikir gegn Danmörku og Belgíu í Þjóðadeildinni. Allir leikirnir verða á Laugardalsvelli.
Leikurnin við Rúmena átti upphaflega að fara fram í mars en var frestað þá vegna kórónuveirunnar.

„Þetta hefur verið löng bið fyrir mig og leikmennina. Núna er komið að þessu og ég hef góða tilfinningu. Við höfum fengið jákvæðar fréttir um að áhorfendur verði hérna og það gefur mér ennþá jákvæðari tilfinningu. Það gæti verið smáatriði sem vantar til að vinna," sagði Erik.

Leikið verður til þrautar gegn Rúmenum en sigurliðið mætir Búlgaríu eða Ungverjalandi í næsta mánuði í úrslitaleik um sæti á EM.

„Vonandi getum við unnið leikinn. Það skiptir ekki máli hvernig við gerum það," sagði Erik.

Smelltu hér til að sjá hópinn

Hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.