David Moyes hefur ekki getað stýrt West Ham af hliðarlínunni í síðustu þremur leikjum en hann hefur verið í einangrun eftir að hann greindist með Covid-19.
Alan Irvine, aðstoðarmaður Moyes, segir að Skotinn sé í fínu standi og gæti snúið aftur á sunnudaginn þegar leikið verður gegn Leicester.
Alan Irvine, aðstoðarmaður Moyes, segir að Skotinn sé í fínu standi og gæti snúið aftur á sunnudaginn þegar leikið verður gegn Leicester.
„Við fylgjum ströngum reglum. Hann hefur verið í sambandi við sjúkrateymi félagsins og það er í sambandi við lækna úrvalsdeildarinnar. Ég held að það séu meiri líkur en minni á að hann verði á hliðarlínunni gegn Leicester," segir Irvine.
Moyes hefur notað tæknina til að stýra sínu liði og haldið liðsræður gegnum fjarskiptabúnað en Hamrarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu 4-0 sigur gegn Úlfunum um síðustu helgi.
Athugasemdir