Fotbolti.net
29.09.26 - 16:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna

Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildin hefur staðfest að Manchester City hafi verið fundið sekt af öllum ákærum fyrir vegna brota á fjármálareglum deildarinnar á tímabilinu 2009/10 til 2017/18.

David Ornstein, blaðamaður The Athletic, sagði frá því síðasta föstudag að City hefði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum en í tilkynningu ensku úrvalsdeildarinnar segir að félagið hafi verið fundið sekt í „öllum ákæruliðum".
Félagið hefur rétt til að áfrýja niðurstöðu óháðu nefndarinnar og hefur frest til föstudagsins 2. október til að nýta þann rétt.

Markmið stjórnar ensku úrvalsdeildarinnar er að öllu ferlinu, þar með talið áfrýjunum og birtingu viðeigandi ákvarðana, ljúki eins fljótt og auðið er.

Í tilkynningu frá ensku úrvalsdeildinni segir að óháða nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að Manchester City hefði á tímabilinu 2009/10 til 2017/18:

- Gert „gervisamninga“ við fjölda viðskiptafélaga sem gáfu ekki rétta mynd af raunverulegu samkomulagi aðila. Félagið reiddi sig einnig á slíka samninga við aðra til að blása tekjur sínar upp og draga úr kostnaði.
- Skilað röngum fjárhagsupplýsingum og leynt raunverulegri fjárhagsstöðu félagsins fyrir endurskoðendum og eftirlitsaðilum fótboltans.
- Brotið verulega gegn bæði útgjaldaheimildum úrvalsdeildarinnar og UEFA.
- Brotið ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og heiðarleika gagnvart úrvalsdeildinni á meðan rannsókn deildarinnar stóð yfir.

„Meginniðurstaðan staðfestir hvað gerðist hjá Manchester City á þessu tímabili. Hún sýnir hvernig félagið braut kerfisbundið gegn reglum úrvalsdeildarinnar í nærri áratug," segir Richard Masters, framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar.

„Enn á eftir að taka ákvarðanir um ákveðna þætti málsins, þar á meðal, og ekki síst, hvaða refsing eigi að fylgja þessum brotum. Nú þegar niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir erum við staðráðin í því að vinna hratt í gegnum það sem eftir er af ferlinu til að skapa vissu fyrir deildina, félögin og stuðningsmenn."
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.