Fotbolti.net
02.11.26 - 18:12
Ívan Guðjón Baldursson

Carrick hlakkar til: Haldið að ég sé klikkaður

Carrick hlakkar til: Haldið að ég sé klikkaður
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Michael Carrick skilur að það hljómi skringilega en hann segist vera afar spenntur fyrir erfiðum leik Manchester United gegn AS Roma í Meistaradeildinni annað kvöld.
Carrick klárar ekki mánuðinn - Getur United fallið?
TENGT EFNI

Carrick klárar ekki mánuðinn - Getur United fallið?

Rauðu djöflarnir eru án sigurs í síðustu níu leikjum og vonast Carrick til að snúa hörmulegu gengi við fyrir landsleikjahlé. Takist honum ekki ætlunarverk sitt gæti hann misst starfið sem aðalþjálfari Man Utd í landsleikjahlénu sem hefst eftir næstu helgi.

Roma hefur verið að spila mjög vel undir stjórn Gian Piero Gasperini og er aðeins búið að tapa einum leik í öllum keppnum á tímabilinu - gegn Real Madrid. Rómverjar leiddu 3-1 þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en tókst einhvern veginn að tapa.

„Þið haldið að ég sé klikkaður, en ég get ekki beðið eftir næsta leik þrátt fyrir neikvæð úrslit að undanförnu og alla umræðuna í fjölmiðlum. Ég er virkilega spenntur," sagði Carrick á fréttamannafundi í dag.

„Ég get ekki séð hvað gerist í framtíðinni og veit því ekki hvað gerist í minni framtíð. Það fer sem fer og framtíðin hefur engin áhrif á mig. Það eina sem ég er að hugsa um er leikurinn annað kvöld."

Lisandro Martínez hefur legið undir mikilli gagnrýni eftir ummæli sín á dögunum og klaufalegt rautt spjald sem hann fékk í tapi gegn Chelsea um nýliðna helgi. Hann er í leikbanni í úrvalsdeildinni en liðtækur fyrir Meistaradeildina, þó að hluti stuðningsmanna vilji ekki sjá hann stíga á grasið. Samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið og eru einhverjir sem telja hann ekki hafa áhuga á að leggja sig fram fyrir liðið.

„Svona hlutir gerast í fótbolta, stundum taka leikmenn rangar ákvarðanir. Stundum gera leikmenn mistök og stundum standa þeir sig mjög vel. Ég er á æfingasvæðinu á hverjum degi og get sagt ykkur að andrúmsloftið er gott og Lisandro er einbeittur. Ég hef oft sagt að framlag leikmanna er ekki vandamálið hjá okkur."

Carrick ræddi einnig um einstaka leikmenn og hrósaði miðverðinum unga Leny Yoro sérstaklega fyrir sitt framlag á upphafi tímabils.
Carrick hlakkar til: Haldið að ég sé klikkaður
Canon

Mynd: EPA

Carrick hlakkar til: Haldið að ég sé klikkaður
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG3+99
2Aston Villa3+99
3Liverpool3+59
4Real Madrid3+59
5Betis3+39
6Stuttgart3+57
7Arsenal3+47
8Barcelona3+56
9Como3+56
10Man City3+46
11Club Brugge3+36
12Sporting3+36
13Dortmund3+16
14Bayern3+55
15Roma3+34
16Atletico Madrid3+14
17Shakhtar D3+14
18PSV304
19Villarreal303
20Man Utd3-13
21Inter3-13
22Napoli3-23
23Galatasaray3-33
24LASK Linz3-33
25Sabah FK3-33
26Feyenoord3-43
27Lens3-43
28Bodö/Glimt3-53
29AEK3-53
30RB Leipzig3-53
31Fenerbahce3-62
32Slavia Prag3-31
33Viking FK3-41
34Porto3-40
35Lille3-60
36Slovan3-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.