Fotbolti.net
02.11.26 - 13:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Frábært skref fyrir mig að fara í Fram og frábært fyrir Fram að fá mig"

'Ég held að allir viti hvað ég hef upp á bjóða þegar ég er 'on it''

'Ég held að allir viti hvað ég hef upp á bjóða þegar ég er 'on it''

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður glæsilega, er mjög þakklátur, spenntur og hamingjusamur yfir því að vera orðinn leikmaður Fram," segir Emil Atlason sem skrifaði undir samning við Fram um helgina.

En af hverju er Emil orðinn leikmaður Fram?
Rúnar Kristins: Sá eini sem okkur langaði í
TENGT EFNI

Rúnar Kristins: Sá eini sem okkur langaði í

„Framararnir vildu virkilega mikið fá mig, seldu mér að ég gæti passað vel inn hjá þeim. Ég þekki líka Rúnar vel, veit hvað hann vill fá frá leikmönnum sínum og það auðvitað hjálpaði í minni ákvarðanatöku."

Var þetta erfið ákvörðun, voru margir kostir í boði?

„Það var náttúrulega erfið ákvörðun að fara frá Stjörnunni. Ég er búinn að vera þar í mörg ár og það var kannski það erfiða að segja skilið við Stjörnuna. Ég dýrka klúbbinn í alla staði en ég þurfti að hugsa um mig og fannst Fram vera rétta skrefið fyrir mig."

Emil skoraði samkvæmt Transfermarkt 90 mörk í 168 leikjum á sjö tímabilum með Stjörnunni og lagði upp átján.

Þú þekkir Rúnar frá tímanum hjá KR, spilar það inn í þína ákvörðun?

„Ég veit hvernig Rúnar er, hann er frábær þjálfari en fyrst og fremst frábær manneskja. Hann kann þetta og kann að smíða lið. Ég er mjög þakklátur að vera kominn til Fram og undir hans stjórn."

Hvernig eru minningarnar þegar þú horfir til baka til tímans undir stjórn Rúnars hjá KR?

„Þær eru flottar, hann er geggjaður í alla staði. Tíminn í KR var æðislegur, ég varð Íslands- og bikarmeistari undir hans stjórn og það er margt sem small vel á þeim tíma. Ég hef trú á því að það geti gerst aftur núna."

Þú ert 33 ára, horfir þú í að það sé ennþá hellingur sem þú hefur fram að færa?

„Já, ég tel það, engin spurning."

Þú ert kominn í Fram, ertu mættur þangað til að berjast um titla?

„Ég held þetta sé frábært skref fyrir mig að fara í Fram og frábært fyrir Fram að fá mig. Ég held að allir viti hvað ég hef upp á bjóða þegar ég er 'on it'. Ég er hér líka hér til þess að hjálpa Fram til að taka næsta skref," segir Emil.

Seinna í dag birtist seinni hluti viðtalsins við Emil þar sem hann er spurður út í tímabilið hjá Stjörnunni.
'Ég dýrka klúbbinn í alla staði en ég þurfti að hugsa um mig og fannst Fram vera rétta skrefið fyrir mig'

'Ég dýrka klúbbinn í alla staði en ég þurfti að hugsa um mig og fannst Fram vera rétta skrefið fyrir mig'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varð Íslands- og bikarmeistari með KR undir stjórn Rúnars Kristinssonar.

Varð Íslands- og bikarmeistari með KR undir stjórn Rúnars Kristinssonar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég hef trú á því að það geti gerst aftur núna'

'Ég hef trú á því að það geti gerst aftur núna'

Canon

Mynd: Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.