02.11.26 - 14:25
Elvar Geir Magnússon
Carrick með engar efasemdir um skuldbindingu leikmanna

Michael Carrick, stjóri Manchester United.

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United.

Mynd: EPA
Manchester United er að ganga í gegnum einn erfiðasta kaflann í sögu félagsins, en liðið hefur nú leikið níu leiki í röð án sigurs. Leita þarf allt aftur til ársins 1988 til að finna jafn slæma hrinu hjá United.
Liðið mætir Roma í Meistaradeildinni á morgun.
Liðið mætir Roma í Meistaradeildinni á morgun.

TENGT EFNI
Sigurþurrðin hjá Man Utd sú lengsta í 38 ár
„Klefinn er á góðum stað. Ég efast á engan hátt um skuldbindingu leikmanna, þeir eru að leggja sig fram. Við getum tekið betri ákvarðanir en framlagið er ekki vandamál," segir Michel Carrick, stjóri United.
„Ég get ekki beðið eftir leiknum. Það er það eina sem ég einbeiti mér að. Það sem gerist eftir leik kemur bara í ljós."
„Ég get ekki beðið eftir leiknum. Það er það eina sem ég einbeiti mér að. Það sem gerist eftir leik kemur bara í ljós."
