Rúnar Kristins: Sá eini sem okkur langaði í

Markakóngur Bestu deildarinnar 2023.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Emil kom í KR árið 2012 frá FH. Rúnar Kristinsson var þá þjálfari KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar er ánægður með að hafa náð að landa Emil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Þór endaði sem næstmarkahæsti leikmaður Fram en spilaði ekkert seinni hlutann vegna meiðsla. Hann var á láni frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur í Fram.

Mynd: Fram

Skoraði tíu mörk í 21 deildarleik í ár, fjögur mörk í bikarnum og þrjú í Evrópu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil er erfður viðureignar og hér er Þorri Stefán, leikmaður Fram, í baráttunni við hann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markakóngur Bestu deildarinnar 2023.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Emil, sem er 33 ára, kemur til Fram frá Stjörnunni og Rúnar þekkir vel til Emils eftir að hafa fengið hann í KR fyrir einum og hálfum áratug síðan.

„Getur komið þeim upp um heila tröppu í viðbót“
Rúnar er ánægður með framherjana sem voru fyrir hjá Fram en vildi auka enn við samkeppnina, sérstaklega þar sem óvíst er hvað verður um Atla Þór Jónasson sem var á láni frá Víkingi.
„Ég er ánægður með Róbert (Hauksson), Vuk (Oskar Dimitrijevic) og Jakob (Byström) - ég hef líka stundum fært Fred upp í framlínuna. Atli var á láni og það er algjörlega óvíst hvað verður um hann, Víkingarnir eiga hann. Við vildum bæta við einum leikmanni og þegar Emil var á lausu og möguleiki á að fá hann, þá vorum við sannfærðir um að hann væri leikmaður sem myndi henta okkar leikstíl og henta okkar plönum inn í framtíðina."
„Þó að hann sé orðinn rúmlega þrítugur þá býr hann yfir gríðarlegri reynslu, er mikill markaskorari og getur miðlað miklu til hinna leikmannanna. Það er frábært að fá hann inn í samkeppnina."
Stórhættulegur þegar hann er í formi
Emil hefur sýnt síðustu ár að hann getur raðað inn mörkum þegar hann er heill. 2023 endaði hann sem markahæsti leikmaður deildarinnar með 17 mörk í 21 leik.
„Hann var frábær þegar hann kom í KR á sínum tíma, gríðarlega mikið efni, mikill hraði og stökkkraftur; mikill íþróttamaður og hefur alltaf verið það. Hann stóð sig mjög vel hjá okkur í KR, fór svo á eitthvað flakk, smá „down perioda" en svo kemur hann aftur til baka og hefur verið frábær undanfarin ár í Stjörnunni og raðað inn mörkum nokkuð jafnt og þétt. Þegar hann er í formi og heill þá er hann stórhættulegur og mjög erfiður viðureignar fyrir alla varnarmenn. Við höfum alveg upplifað það í Fram að það að eiga við hann er heljarmikið átak fyrir varnarmenn allra liða. Þetta er mikill fengur fyrir okkur og sýnir að við viljum reyna berjast áfram í kringum toppinn."
„Það var frábært að komast í Evrópukeppni í ár og ef við ætlum að gera það aftur, eða gera betur, þá þurfum við að bæta í og reyna styrkja okkur aðeins. Við viljum líka breikka hópinn því fjöldi leikja mun aukast að einhverju leyti."
Allan tímann fyrsti kostur
Það eru og voru fleiri framherjar á lausu. Var það skýrt hjá þér að Emil væri kostur númer eitt? Fréttamaður nefndi engin nöfn við Rúnar en leikmenn eins og Stefan Alexander Ljubicic, Nikolaj Hansen og Hólmbert Aron Friðjónsson eru leikmenn sem orðaðir eru við félagaskipti.
„Emil var í rauninni sá eini sem okkur langaði í. Ég og Helgi erum að garfa í þessu og eyrnamerkja með okkar starfsfólki hvaða möguleikar séu í stöðunni. Emil var allan tímann fyrsti kostur hjá okkur og mikil ánægja að við náðum að landa honum."
Vildu tryggja styrkingu fyrir næsta tímabil
Að vera með einn stærri framherja, „target center", er það eitthvað sem þú leggur áherslu á í þínum leikstíl; einn stærri og svo einn hraðari í kring?
„Ekkert sérstaklega. Ég vil hafa menn sem eru tilbúnir að hlaupa inn fyrir vörnina og tilbúnir að hlaupa og berjast fyrir liðið sitt þegar við erum ekki með boltann. Atli hjálpaði okkur fullt í sumar, gerði mjög vel og var kominn með sjö mörk þegar hann meiddist. Hann missti af meira en helming af mótinu, var alltaf að falla betur og betur inn í hlutina."
„Það gerði okkur gott að vera með samkeppni. Vuk, Róbert, Atli og Jakob voru að berjast um stöðurnar og menn þurftu alltaf að vera á tánum."
„Nú er vitað að við munum missa Atla, vitum ekkert hvenær það gæti orðið möguleiki að eiga viðræður við Víking um hann eða hvort þeir ætli að veðja á hann. Það er eitthvað sem við getum ekki beðið eftir að sjá, vildum tryggja styrkingu fyrir næsta tímabil."
Gætu fengið inn fleiri til að auka við breiddina
Þú nefndir áðan að breikka hópinn, sérðu einhverja stöðu á vellinum þar sem þú vilt auka breiddina?
„Við erum með þokkalega góða breidd. Það voru ekki mikil meiðsli í sumar, fyrir utan Atla þá voru flestir að ná að tikka inn í háa prósentu í að vera til taks. Við vorum með flottan hóp, en það má ekki mikið út af bregða. Ef tveir allt í einu detta út þá er breiddin orðin lítil. Við munum fara í Evrópukeppni, tökum allavega tvo leiki þar og vonandi fleiri, og spilum líka vonandi fleiri bikarleiki en í ár. Við fengum meira frí á milli leikja á þessu tímabili þar sem við duttum strax út úr bikarnum. Á næsta ári fáum við vonandi sem flesta leiki, þá þurfum við meiri breidd, álagið verður meira og þá aukast líkur á meiðslum. Við sjáum alveg fyrir okkur að við þurfum að bæta einhverju fleiru við okkur."
„Við erum búnir að fá Guðmund Stefánsson frá Selfossi sem er ungur og efnilegur leikmaður. Við ætlum að sjá hvernig hann kemur út í vetur og fram á vor. Ef hann bætir sig og nær að venjast meiri hraða sem fylgir efstu deild þá gæti hann orðið mikill fengur fyrir okkur. Hann þarf smá tíma og við munum gefa honum hann," segir Rúnar.

Emil kom í KR árið 2012 frá FH. Rúnar Kristinsson var þá þjálfari KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar er ánægður með að hafa náð að landa Emil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Þór endaði sem næstmarkahæsti leikmaður Fram en spilaði ekkert seinni hlutann vegna meiðsla. Hann var á láni frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur í Fram.

Mynd: Fram

Skoraði tíu mörk í 21 deildarleik í ár, fjögur mörk í bikarnum og þrjú í Evrópu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil er erfður viðureignar og hér er Þorri Stefán, leikmaður Fram, í baráttunni við hann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
