Fotbolti.net
02.11.26 - 12:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nenad tekur níunda tímabilið með Ægi

Nenad tekur níunda tímabilið með Ægi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Nenad Zivanovic verður samkvæmt heimildum Fótbolta.net áfram þjálfari Ægis í Þorlákshöfn.

Liðið verður í 2. deild á komandi tímabili eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni.

Ægir byrjaði tímabilið ágætlega, komst í 8-liða úrslit bikarsins en fékk bara tvö stig í deildinni eftir maí.
Nenad þekkir hvern krók og kima í Þorlákshöfn en hann hefur verið þjálfari liðsins frá því að hann tók við í lok september 2018.

Liðið komst upp úr 2. deild 2022 og 2025 og lék í næstefstu deild tímabilin á eftir. Ægir vann 2. deild sumarið 2025.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.