Fotbolti.net
02.11.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tæplega 20 þúsund atvinnumenn greiddu atkvæði

Tæplega 20 þúsund atvinnumenn greiddu atkvæði
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Á hverju ári velja FIFPro, alþjóðasamtök atvinnumanna í fótbolta, draumalið og greiddu tæplega 20 þúsund leikmenn atkvæði í ár.
FIFPro hefur þar af leiðandi gefið út 26 leikmanna lista yfir þá sem geta verið valdir í draumalið ársins. Tíu þeirra leika í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal á flesta fulltrúa þegar kemur að varnarleiknum þar sem David Raya, William Saliba og Gabriel koma allir til greina í lið ársins.

Á miðjunni kemur á óvart að ekkert pláss er fyrir Joao Neves, leikmann PSG, en þar má finna bæði Rodri og Pedri sem leika saman fyrir Barcelona og spænska landsliðið.

Í sóknarlínunni koma Harry Kane og Michael Olise, leikmenn FC Bayern, báðir til greina ásamt Lionel Messi og Cristiano Ronaldo sem eru einu leikmennirnir sem spila utan Evrópu.

Draumaliðið sjálft verður kynnt að viku liðinni, mánudaginn 9. nóvember.

Markmenn:
Thibaut Courtois (Real Madrid)
Emiliano Martínez (Aston Villa > Chelsea)
David Raya (Arsenal)

Varnarmenn:
Pau Cubarsí (Barcelona)
Virgil van Dijk (Liverpool)
Gabriel Magalhaes (Arsenal)
William Saliba (Arsenal)
Dayot Upamecano (FC Bayern)
Marc Cucurella (Chelsea > Real Madrid)
Achraf Hakimi (PSG)
Nuno Mendes (PSG)

Miðjumenn:
Jude Bellingham (Real Madrid)
Bruno Fernandes (Man Utd)
Enzo Fernández (Chelsea > Man City)
Pedri (Barcelona)
Rodri (Man City > Barcelona)
Declan Rice (Arsenal)
Vitinha (PSG)

Sóknarmenn:
Erling Haaland (Man City)
Harry Kane (FC Bayern)
Michael Olise (FC Bayern)
Khvicha Kvaratskhelia (PSG)
Kylian Mbappé (Real Madrid)
Lionel Messi (Inter Miami)
Cristiano Ronaldo (Al-Nassr)
Lamine Yamal (Barcelona)
Tæplega 20 þúsund atvinnumenn greiddu atkvæði
Canon

Mynd: EPA

Tæplega 20 þúsund atvinnumenn greiddu atkvæði
Canon

Mynd: EPA

Tæplega 20 þúsund atvinnumenn greiddu atkvæði
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.