Fotbolti.net
26.11.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Sá markahæsti falur fyrir 35 milljónir

Sá markahæsti falur fyrir 35 milljónir
Canon

Mynd: EPA

Portúgalski framherjinn Gustavo Varela er eftirsóttur af félögum á Ítalíu, Englandi og víðar og gæti fallbaráttulið Monza verið tilbúið að selja hann fyrir um 35 milljónir evra.
Markahæsti maður deildarinnar gæti skipt um félag
TENGT EFNI

Markahæsti maður deildarinnar gæti skipt um félag

Varela er 21 árs gamall og hefur skorað 11 mörk í 11 leikjum með Monza í efstu deild á Ítalíu, auk þess að hafa sett 9 mörk í 27 leikjum á ferli sínum með yngri landsliðum Portúgal.

Fabrizio Romano greinir frá því að Monza gæti verið reiðubúið að hlusta á tilboð sem hefjast í 30 milljónum evra.

Það er þó mögulegt að ákveðið uppboðsástand geti skapast ef mörg félög leggja fram tilboð í framherjann markheppna.

Varela er ekki með riftunarákvæði í samningi sínum við Monza og fær Benfica 20% af ágóða sölunnar. Monza borgaði rúmar 3 milljónir evra til að kaupa Varela síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.