02.11.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Tók þrjú ár að verða sigursælastur í sögu PSG

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Luis Enrique er orðinn sigursælasti þjálfari í sögu Paris Saint-Germain eftir stórsigur liðsins gegn Le Havre um helgina.

TENGT EFNI
Heimsmeistarinn De la Fuente þjálfari ársins
Enrique hefur núna sigrað 127 sinnum í 188 keppnisleikjum við stjórnvölinn hjá félaginu. Enginn annar þjálfari hefur unnið svo marga leiki í sögu PSG sem var stofnað árið 1970, en Laurent Blanc er í öðru sæti með 126 sigra.
Þetta er magnað afrek í ljósi þess að Enrique hefur aðeins verið í rétt rúmlega þrjú ár við stjórnvölinn hjá þessu risaveldi, en á þeim tíma hefur hann náð stórkostlegum árangri með liðið.
PSG hefur unnið frönsku deildina öll þrjú árin sem Enrique hefur verið við stjórnvölinn, eins og við var að búast, en það sem hann hefur fram yfir forvera sína er að honum tókst að vinna langþráðan Meistaradeildartitil í fyrra.
Það var fyrsti Meistaradeildartitill í sögu PSG og fylgdi liðið því eftir með að verja titilinn á síðustu leiktíð. Enrique er þar með strax orðinn algjör goðsögn hjá PSG.