Yfirferðin með Elízu Gígju: Rán um hábjartan dag í London

Mary Earps skipti yfir í London City í sumar

Mynd: EPA

Lauren Hemp skoraði og lagði upp

Mynd: EPA

Alessia Russo er orðin markahæsti Englendingur í sögu Meistaradeildarinnar

Mynd: EPA

Chasity Grant skoraði fyrir Aston Villa

Mynd: EPA

Drew Spence er orðin leikjahæsti leikmaður ensku deildarinnar frá upphafi

Mynd: EPA

Victoria Pelova skoraði fyrir Tottenham

Mynd: EPA

Melvine Malard skoraði tvö fyrir Chelsea

Mynd: EPA

Ellie Carpenter skoraði

Mynd: EPA

Felicia Schröder hefur spilað frábærlega fyrir Real Madrid

Mynd: EPA

Mary Earps skipti yfir í London City í sumar

Mynd: EPA

Toppslagur umferðarinnar í enska boltanum fór fram í höfuðborginni þegar London City Lionesses tóku á móti ríkjandi meisturum Manchester City. Heimakonur voru með ótrúlega yfirburði í fyrri hálfleiknum en náðu ekki að nýta það og staðan var 0-0 í hálfleik. Það var svo Bunny Shaw sem kom gestunum yfir snemma í seinni hálfleik þegar hún slapp ein í gegn eftir sendingu frá Lauren Hemp. Shaw sýndi svo góða takta þegar hún skoraði í opið markið eftir að hafa komist fram hjá Mary Earps, sem stóð á milli stanganna í sínum fyrsta deildarleik fyrir London City.
Heimakonum tókst loksins að koma boltanum í netið á 72. mínútu eftir hornspyrnu frá Mapi León sem Jana Fernández skallaði í samskeytin. Gleði London City entist þó ekki lengi þar sem Manchester City komust aftur yfir strax á 74. mínútu þegar Mary Fowler átti frábæra fyrirgjöf fyrir markið þar sem Lauren Hemp kom á siglingunni og skilaði boltanum í netið með fyrstu snertingu. Fleiri urðu mörkin ekki og London City konur naga sig líklega í handarbökin þegar þær horfa til baka á þennan leik en þær fengu aragrúa góðra færa í leiknum.
Alessia Russo er að finna formið
Everton og Manchester United mættust í Bítlaborginni í eina leik laugardagsins sem endaði með steindauðu 0-0 jafntefli. Manchester United, sem hafa verið á fínu skriði undanfarið og skorað slatta af mörkum fundu ekki leið í gegn hjá þeim bláklæddu sem vörðust vel. Arsenal og Aston Villa gerðu einnig jafntefli en sá leikur endaði 1-1. Chasity Grant kom Villa yfir á 25. mínútu úr þröngu færi með skoti sem fór af varnarmanni og þaðan í netið. Alessia Russo, sem varð í vikunni markahæsti Englendingurinn í sögu Meistaradeildarinnnar þegar hún skoraði þrennu gegn Benfica, hefur heldur betur sýnt sitt rétta andlit undanfarið eftir erfiða byrjun. Hún jafnaði metin á 85. mínútu þegar hún fékk fyrirgjöf frá Stina Blackstenius, kom sér fram fyrir varnarmanninn og stangaði boltann í netið. Russo er núna búin að skora tíu mörk í síðustu átta leikjum fyrir félagslið og landslið en hún gæti reynst Arsenal ansi mikilvæg á því slæma skriði sem þær eru á.
Drew Spence náði ótrúlegum áfanga
Eftir erfiðar vikur undanfarið náði Tottenham sér á strik og unnu mjög sannfærandi sigur á Birmingham City. Julie Blackstad, Olivia Holdt og Signe Gaupset komu Tottenham í 0-3 áður en Neve Herron minnkaði muninn á 64. mínútu. Victoria Pelova setti svo síðasta naglann í kistuna þegar hún kom Tottenham í 1-4 á 84. mínútu. Tottenham, sem hafa tapað nokkrum leikjum illa undanfarið tókst því að stoppa blæðinguna í bili og sækja sín fyrstu þrjú stig síðan í september. Drew Spence náði þeim merka áfanga í þessum leik og varð leikjahæsti leikmaður deildarinnar fár upphafi en hún spilaði sinn 217. leik. Spence, sem er 34 ára spilaði fyrir Chelsea árin 2011-2022 og færði sig þá um set innan London og fór í Tottenham þar sem hún hefur spilað síðan.
Chelsea halda áfram að spila vel en þær mættu Charlton um helgina en þær eru á botninum með núll stig eftir átta umferðir. Chelsea setti tóninn strax á þriðju mínútu þegar Nathalie Björn kom þeim í 0-1. Tíu mínútum seinna voru þær búnar að setja tvö mörk í viðbót en þá höfðu Melvine Malard og Ellie Carpenter báðar komið boltanum í netið. Malard setti annað mark á 19. mínútu og fóru Chelsea inn í hálfleikinn með fjögurra marka forystu. Þær Agnes Beever-Jones og Giulia Dragoni settu svo mark hvor í seinni hálfleiknum og leikurinn endaði 0-6. Ótrúlegir yfirburðir Chelsea í þessum leik en þær voru með 6,37 í xG að leik loknum og 53 snertingar inn í teig andstæðingsins sem er ótrúleg tölfræði
Real reynir að halda í við Barcelona
Barcelona eru áfram óstöðvandi á Spáni en þær unnu Levante Badalona 0-4 á útivelli. Caroline Graham Hansen heldur áfram að skila mörkum en hún skoraði eitt mark Börsunga. Claudia Pina skoraði einnig eitt mark og hin brasilíska Kerolin var frábær í leiknum með tvö mörk og eina stoðsendingu. Real Madrid gera það sem þær geta til að halda í við Barcelona en þær unnu Sevilla í dramatískum leik. Real komst yfir á 12. mínútu með marki frá hinni sænsku Felicia Schröder sem skorar í hverjum leik um þessar mundir. Sevilla jafnaði metin eftir hálftímaleik með marki frá Xenia Barrios og allt stefndi í jafntefli. Það var ekki fyrr en á 86. mínútu sem Real tókst að setja annað mark en það var Arianna Caruso sem skoraði það. Lineth Beerensteyn kláraði svo leikinn fyrir þær hvítklæddu tveimur mínútum síðar og lokatölur 1-3 og mjög sanngjarn sigur Real Madrid staðreynd.
OL Lyonesses óstöðvandi
PSG misstigu sig um helgina þegar þær heimsóttu nágranna sína í Paris FC í leik sem endaði 1-1. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik, Clara Mateo kom Paris FC yfir á 11. mínútu áður en Kinga Seweryn varð fyrir því óhappi að skora sjálfsmark. OL Lyonnes eru áfram með fullt hús stiga en þær heimsóttu Montpellier FC. Montpellier komst yfir á 6. mínútu og héldu í þá forystu alveg fram á 50. mínútu þegar gestirnir ákváðu að gefa í. Á tíu mínútum breyttu þær stöðunni í 1-3 en það er fátt sem stoppar þær þegar þær komast á skrið. Montpellier minnkuðu muninn með sínu eina skoti í seinni hálfleiknum en þá bættu OL bara við tveimur mörkum í viðbót og leikurinn endaði 5-2.

Lauren Hemp skoraði og lagði upp

Mynd: EPA

Alessia Russo er orðin markahæsti Englendingur í sögu Meistaradeildarinnar

Mynd: EPA

Chasity Grant skoraði fyrir Aston Villa

Mynd: EPA

Drew Spence er orðin leikjahæsti leikmaður ensku deildarinnar frá upphafi

Mynd: EPA

Victoria Pelova skoraði fyrir Tottenham

Mynd: EPA

Melvine Malard skoraði tvö fyrir Chelsea

Mynd: EPA

Ellie Carpenter skoraði

Mynd: EPA

Felicia Schröder hefur spilað frábærlega fyrir Real Madrid

Mynd: EPA
