Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 03. janúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski fékk að spila - Forráðamenn Espanyol brjálaðir
Mynd: EPA

Robert Lewandowski leikmaður Barcelona fékk tvö gul spjöld og þar með rautt í lokaleik liðsins fyrir HM hléið og fékk þriggja leikja bann fyrir ofsalega framkomu í garð dómara leiksins.


Barcelona áfrýjaði dómnum og það var ekki komin niðurstaða í málið þegar leikur Barcelona og Espanyol hófst á gamlársdag.

Samkvæmt reglum er þá ekki búið að dæma hann í bann svo hann var löglegur og spilaði allan leikinn.

Forráðamenn Espanyol voru allt annað en sáttir með þessa niðurstöðu.

„Espanyol mun nýta öll úrræði til að verja hagsmuni okkar og aðdáenda. Þetta setur samkeppni okkar í mikla hættu en þetta var ákveðið í fljótfærni og er augljóslega galli í kerfinu," segir í yfirlýsingu Espanyol.


Athugasemdir
banner
banner
banner