17.09.26 - 14:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óli Stefán: Ég fór bara að hlæja
Þeir hafa verið í yfirvinnu frá því að þetta var staðfest
Auglýsing

Óli Stefán og Aron Fannar Birgisson

Mynd: Selfoss

Selfoss verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Mynd: Hrefna Morthens

Selfoss vann þessa keppni 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Stefán og Aron Fannar Birgisson

Mynd: Selfoss
„Þetta er skemmtileg stemning, góð umgjörð og setur krydd í þetta fyrir okkur. Við erum búnir að vera með einbeitinguna á deildinni sem kláraðist um síðustu helgi. Það er mjög gott að líta upp úr því verkefni og snúa sér að þessu," segir Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss, fyrir úrslitaleik Gatorade-bikars Fótbolta.net sem fram fer á Laugardalsvelli annað kvöld.
Selfoss mætir Haukum en liðin enduðu í fyrsta og öðru sæti 2. deildar í sumar. Leikurinn hefst klukkan 19:00.

„Við erum búnir að spila við þá tvisvar og báðir leikir hörkuleikir. Bæði lið hafa gert vel í sumar."
Selfoss kemur í leikinn eftir átta sigra, eitt jafntefli og eitt tap í deildinni. Einn af sigrunum kom gegn Haukum. „Ég er mjög ánægður með hvar við erum núna."
Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni með því að sigra KFG í lokaumferð 2. deildar. Selfoss komst í 2-0 í leiknum en missti svo mann af velli með rautt spjald.
„Ég fór bara að hlæja, þetta súmmeraði upp sumarið hjá okkur, erum búnir að ganga í gegnum margt en strákarnir hafa staðist hverja raun og vaxið í gegnum þetta allt saman. Þeir gerðu það svo sannarlega manni færri í seinni hálfleiknum. Þar kom að góðu öll þessi vinna sem við erum búnir að leggja í varnarleikinn. Það skein í gegn í lokin."
Selfoss vann þessa keppni 2024 og Óli Stefán telur að sú reynsla geti hjálpað á morgun.
„Ég hef rætt við þá sem voru hérna þann daginn og það er ansi stór hluti af hópnum og líka þeir sem eru að vinna í kringum liðið. Reynslan skín í gegn, menn hafa upplifað þetta áður. Við skulum vona að spennustigið haldist jafnt og gott."
„Þeir sem eru í kringum knattspyrnudeildina og samfélagsmiðlastjórinn hafa verið í yfirvinnu frá því að þetta var staðfest og eru að gera mjög vel. Það myndast mjög góð stemning eins og alltaf í kringum svona viðburði á Selfossi," segir Óli Stefán sem býst við mörgum Selfyssingum á leikinn.