Fotbolti.net
17.09.26 - 14:47
Elvar Geir Magnússon

Hjammi leysti Heimi Guðjóns af - „Ég er bónuskall“

Auglýsing
Hjammi með ávísunina góðu.

Hjammi með ávísunina góðu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Lengjudeildin
Í dag var haldinn fréttamannafundur fyrir 100 milljóna króna leikinn svokallaða en Þróttur og Fylkir eigast við á Laugardalsvelli á laugardag og keppa um sæti í Bestu deildinni.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, forfallaðist og komst ekki á fundinn en stuðningsmaður liðsins, Hjálmar Örn Jóhannsson, leysti hann af og ræddi við Fótbolta.net.
„Þetta er búið að gíra mann svo mikið upp. Ég skal viðurkenna að sem stuðningsmaður hef ég sjálfur verið í lægð, ég er vanur því að við séum í Bestu deildina. Fylkir á heima í efstu deild og nú er maður dottinn í gírinn aftur," segir Hjammi.

„Ég átti að 'gigga' á laugardagskvöldið en nú er maður búinn að aflýsa því. Svona er fótboltinn að hafa áhrif, að fá svona stóra leiki. Þetta fyrirkomulag er svo skemmtilegt."

Hjammi segir mikla ánægju með Heimi Guðjónsson við stjórnvölinn í Árbænum og að hann treysti engum betur til að stýra liðinu í leiknum á laugardaginn.

„Er það einhver annar maður sem maður myndi vilja hafa þarna en hann? Nei, hann hefur unnið allt. Ég ætla líka að vona að strákarnir fái að njóta góðs af þessum 100 milljónum. Ég er bónuskall og vona að þeir fái eitthvað af þessu."
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.