Birgir Steinn kom inn sem varamaður gegn KA en neyddist til að fara af velli korteri eftir að hann kom inn á.
KR tilkynnti í síðasta mánuði um samstarf við fótboltaakademíu í Gana. Í kjölfarið hefur félagið þegar fengið til sín tvo ganverska leikmenn, þá Fuseini Issah og Fredrick Delali.
Í tilkynningu KR segir að samstarfið sé við Field Masters Academy og miðar að því að styðja við menntun og fótboltaiðkun ungra leikmanna í Gana, jafnframt því að skapa raunhæfan farveg fyrir efnilega leikmenn til að taka sín fyrstu skref í Evrópu.
Þá kemur fram að þjálfarar KR og akademíunnar muni vinna náið saman og að skipulagðar verði gagnkvæmar heimsóknir milli landanna.
Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, um samstarfið, sigurinn gegn KA í Lengjubikarnum og um Jakob Gunnar Sigurðsson, sem Lyngby eru að festa kaup á.
Í tilkynningu KR segir að samstarfið sé við Field Masters Academy og miðar að því að styðja við menntun og fótboltaiðkun ungra leikmanna í Gana, jafnframt því að skapa raunhæfan farveg fyrir efnilega leikmenn til að taka sín fyrstu skref í Evrópu.
Þá kemur fram að þjálfarar KR og akademíunnar muni vinna náið saman og að skipulagðar verði gagnkvæmar heimsóknir milli landanna.
Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, um samstarfið, sigurinn gegn KA í Lengjubikarnum og um Jakob Gunnar Sigurðsson, sem Lyngby eru að festa kaup á.
Samstarf á breiðum grundvelli
„Þetta sprettur í grunninn upp úr samtali. Guðmundur Óskar (Pálsson) fer þarna út og sér að það er vel að öllu staðið þarna, vel haldið utan um þetta og mikill metnaður. Menn reyna að finna sameiginlegan flöt. Þarna eru fullt af strákum sem reyna að berjast fyrir því að lifa af því að vera knattspyrnumenn.
Þeir telja sig geta sótt mögulega eitthvað til okkar hvað varðar þjálfun og þekkingu. En þetta samstarf er núna á byrjunarstigi. Við þurfum að sjá hvar við getum hjálpað þeim mest og þeir geta hjálpað okkur mest. Vonandi getum við komið með eitthvað að borðinu sem þeir geta nýtt sér.
Það er hugmyndin að þetta sé samstarf á breiðari grundvelli en að við séum að taka leikmenn frá þeim. Það eru komnir tveir strákar hingað og þeir eru að ná áttum og koma sér inn í hlutina. Það gengur vel og við bindum miklar vonir við þetta.“
Fimmtán ára markaskorari
Það vakti athygli um helgina þegar Tristan Gauti Línberg Arnórsson skoraði seinna mark KR í 2 0 sigri gegn KA í Lengjubikarnum. Tristan er aðeins fimmtán ára gamall og hefur hann leikið tvo landsleiki með U17 ára liði Íslands.
„Tristan er hæfileikaríkur ungur maður. Ætli maður skilgreini hann ekki sem sóknarmann. Getur spilað fremstu stöðurnar á miðjunni og á kantinum. Hann er með góða grunntækni og leggur sig mikið fram. Hann hefur verið mjög vaxandi.
Hann er kannski ekki sérstaklega mikill um sig en er hæfileikaríkur, samviskusamur og duglegur. Hann hefur verið að æfa með okkur í vetur og var aðeins í fyrra og tekið nokkra leiki með okkur. Það er gaman að sjá þessa drengi vaxa með verkefnunum.“
Í sama leik neyddust þeir Galdur Guðmundsson og Finnur Tómas til að fara af velli í fyrri hálfleik. Birgir Steinn kom inn á í staðinn fyrir Finn en fór af velli korteri síðar.
„Þetta var svo sem ekkert alvarlegt. Finnur og Galdur meiddust á ökkla en voru báðir á æfingu í dag. Síðan tognaði Birgi á dögunum. Hann tognaði nú ekki aftur en var ekki alveg klár í að koma inn á með litlum fyrirvara. Það var nú bara öryggisins vegna að við tókum hann út af. Ég á ekki von á því að þetta hafi verið alvarleg skakkaföll.“
Jakob Gunnar á förum til Lyngby
Greint var frá því á Fótbolta.net í gær að Lyngby væru að festa kaup á Jakobi Gunnari Sigurðssyni. Jakob gekk til liðs við KR sumarið 2024 frá uppeldisfélaginu Völsungi. Hann kláraði tímabilið á Húsavík og hélt svo til Reykjavíkur.
Jakob hefur aðeins leikið tvo keppnisleiki fyrir KR en hann lék fyrri hluta síðasta tímabils á láni hjá Þrótti. Hann var síðar lánaður út til Lyngby þar sem hann hefur raðað inn mörkum fyrir U19 liðið. Óskar segist ánægður fyrir Jakobs hönd ef skiptin ganga í gegn.
„Þetta er auðvitað frábært fyrir hann. Honum hefur liðið vel út í Lyngby frá því að hann fór út síðasta sumar. Hann hefur vaxið mikið. Þetta er mjög ánægjulegt fyrir hann og okkur. Þetta er mikil viðurkenning fyrir hann að þeir skuli kaupa hann. Hann hefur tekið mikil skref þarna.
Hann hefur verið mjög góður í 19 ára deildinni og hefur spilað með aðalliðinu þar sem hann hefur skorað og lagt upp. Þetta er frábært fyrir hann og auðvitað okkur þó að hann hafi verið stutt hérna. Það er alltaf ánægjulegt að sjá unga menn taka næsta skref. Það er ekkert sjálfgefið að gera það með glæsibrag,“ sagði Óskar að lokum.
Athugasemdir



