Fotbolti.net
03.02.26 - 12:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Unglingalandsliðsmaður á reynslu hjá Val

Unglingalandsliðsmaður á reynslu hjá Val
Canon

Mynd: Bodö/Glimt

Hinn norsk-íslenski Sturla Sagatun Kristjánsson æfir þessa dagana með Val, er þar á reynslu.

Sturla er miðjumaður sem hefur spilað með U19 liði Bodö/Glimt.

Hann er fæddur árið 2006.

Hann á að baki einn leik með aðalliði Bodö/Glimt, lék gegn Brönnöysund í norska bikarnum snemma árs 2024.

Sturla á að baki fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af þrjá fyrir U19 á æfingamóti 2024.
Hann lék þrjá leiki í Evrópukeppni unglingaliða með Bodö/Glimt fyrir áramót og samkvæmt Transfermarkt var honum stillt upp sem varnarsinnaður miðjumaður.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.