03.03.16 - 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
Brynjar Gests: Brosum og höldum áfram
Auglýsing

Brynjar Þór þjálfaði Fjarðabyggð á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Brynjar Þór Gestsson, fyrrverandi þjálfari Fjarðabyggðar, stýrði Þrótturum í dag í fjarveru Gregg Oliver Ryder sem er erlendis á þjálfaranámskeiði.
Þróttur tapaði 2-0 fyrir Fjölni og var Brynjar sáttur með sína menn þrátt fyrir tapið, enda tefldi hann fram ungu liði og var ánægður með baráttuna í þeim.

„Að skora mörk var það sem að klikkaði. Ég myndi segja að við höfum fengið kannski fjóra til fimm mjög góða sénsa,\" sagði Brynjar eftir tapið.
„Svo þegar við fáum markið á okkur um miðjan seinni hálfleik þá klikkar sending sem er í raun og veru sáraeinföld, hann bara hittir ekki boltann og þá eru þeir komnir einir í gegn. Frekar súrt.
„Ég er aldrei sáttur við að tapa en við börðumst allan leikinn og gáfum ansi mikið í þetta. Við vorum með mikið af ungum strákum og margt mjög jákvætt á þessum tímapunkti, þannig við bara brosum og höldum áfram.\"
Þróttarar eru búnir að bæta nokkrum útlendingum við sig og voru þeir ekki með í dag.
„Það er bara þannig að tveir þeirra eru ekki komnir. Tiago er ekki kominn með keppnisleyfi og hinn er meiddur. Þeir koma með meiri gæði í hópinn það er alveg ljóst, en þeir eiga samt eftir að sanna sig.\"