Mikið hefur verið rætt um markvarðarstöðu Keflavíkur en Sindri Kristinn Ólafsson óskaði eftir að fá samningi sínum rift þar sem hann vildi flytja út til kærustu sinnar, landsliðskonunnar Guðrúnar Arnardóttur, sem gekk til liðs við Hammarby í upphafi árs.
Flutningar Sindra standa þó og falla með því hvort að Keflavík nái að fylla í skarð hans. Þá er markvörðurinn efnilegi Ásgeir Orri Magnússon á batavegi eftir krossbandaslit og nálgast endurkomu.
Fótbolti.net ræddi við Harald Frey Guðmundsson, þjálfara Keflavíkur, um stöðuna suður með sjó.
Flutningar Sindra standa þó og falla með því hvort að Keflavík nái að fylla í skarð hans. Þá er markvörðurinn efnilegi Ásgeir Orri Magnússon á batavegi eftir krossbandaslit og nálgast endurkomu.
Fótbolti.net ræddi við Harald Frey Guðmundsson, þjálfara Keflavíkur, um stöðuna suður með sjó.
Engin ákvörðun tekin
„Hans ósk er að flytja til Svíþjóðar til unnustu sinnar. En að sama skapi er hann með okkur og samningsbundinn okkur þangað til annað kemur í ljós. Það hefur engin ákvörðun verið tekin. Það kom frá honum að ef þetta væri hægt þá væri það óskastaðan fyrir hann. Að sama skapi er hann 100% með okkur þangað til annað kemur í ljós.“
Þetta stendur þá og fellur með því hvort þið náið að sækja annan markvörð?
„Já, en það er svo sem enginn æsingur í þessu. Við erum bara að skoða málin. Í rauninni stýrir Ómar markvarðarþjálfari þeirri herferð. Það er lítið stress af okkar hálfu, Sindri er hérna með okkur ásamt Ásgeiri Orra eins og staðan er núna.“
Greint var frá áhuga Keflavíkur á Þórhalli Ísaki Guðmundssyni, markverði Þróttar. Keflavík bauð í leikmanninn en Þróttur hafnaði tilboðinu. „Við erum almennt að skoða markaðinn og hvað er hægt að gera. Við þurfum að vanda okkur í því,“ segir Haraldur aðspurður um hvort að Keflavík væri í markvarðarleit.
Hvernig er staðan á Ásgeiri?
„Hann er allur að koma til. Það hafa verið nokkur bakslög í vetur í endurkomunni en hann er kominn alveg á fullt. Við ættum að geta gefið honum einhverjar mínútur í næsta leik gegn Fram í deildarbikarnum. Hann hefur verið að æfa vel í vetur en hefur verið óheppinn með önnur meiðsli sem hafa komið.“
Koma Davíðs Helga
Keflavík hefur fengið hafsentinn unga Davíð Helga Aronsson á láni frá Víkingi.
„Hann er hrikalega efnilegur leikmaður. Við þekkjum hann ágætlega og spiluðum nokkrum sinnum gegn honum í fyrra þegar hann var á láni hjá Njarðvík. Hann er góður leikmaður með vinstri löpp. Við erum gríðarlega ánægðir með að fá hann, hann eykur bæði gæðin og breiddina í hópnum.
Það var löngu frágengið milli okkar og Víkings að hann kæmi til okkar á láni. Það stóð alltaf til að hann kæmi til okkar 1. mars sem var raunin. Hann fer með okkur núna í æfingaferðina til Tenerife 12. mars.“
Ánægður með undirbúningstímabilið
Þetta hefur heilt yfir verið fínt. Við höfum verið að gefa mörgum séns og margir fengið að spila, sérstaklega yngri drengir. Þetta hafa verið fínustu tveir mánuðir, við eigum einn leik inni og mætum Fram á föstudaginn en getum auðvitað ekki komið okkur áfram í undanúrslitin.“
Hvernig er staðan á hópnum?
„Baldur Logi er aðeins að glíma við vesen í hnénu. Hann er að bíða eftir að komast í snyrtingu á liðþófanum en það er ekkert alvarlegt. Eins og staðan er núna er Baldur sá eini sem er frá vegna meiðsla.“
Býst ekki við frekari styrkingum
„Ég held ekki nei, mér finnst við vera nokkuð góðir. Auðvitað lokum við ekki aldrei á það, eins og kannski flestir ef eitthvað gott býðst. Eins og staðan er núna erum við sáttir.“
Sagt var frá því í Þungavigtinni að Víkingur væri opið fyrir því að lána Elías Má Ómarsson út fyrri hluta tímabils. Hann gekk til liðs við Víking frá Meizhou Hakka í Kína skömmu fyrir áramót. Elías er uppalinn Keflvíkingur og átti hann í viðræðum við uppeldisfélagið fyrr í vetur.
„Ég hef ekki heyrt í Elíasi eða í Víkingum varðandi þetta. Ég var auðvitað í sambandi við þá varðandi Davíð Helga en þetta kom aldrei til tals.“
Athugasemdir


