Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 16:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Eltir Sindri ástina til Svíþjóðar?
Sindri Kristinn.
Sindri Kristinn.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Guðrún Arnardóttir.
Guðrún Arnardóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Kristinn Ólafsson gæti verið á leið til Svíþjóðar. Frá þessu segir Sigurður Gísli Bond, einn af sérfræðingum Dr. Football, í færslu á X en tíðindin hafa hvorki fengist staðfest né hefur þeim verið neitað.

Kærasta Sindra, landsliðskonan Guðrún Arnardóttir, samdi í síðasta mánuði við Hammarby og segir Sigurður að Sindri sé að flytja út til hennar.

Markmaðurinn hjálpaði Keflavík að komast upp úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili og framlengdi hann samning sinn við félagið í vetur. Sindri var fenginn til Keflavíkur frá FH eftir að Ásgeir Orri Magnússon sleit krossband síðasta vor.

Fótbolti.net hefur sent fyrirspurn á Sindra sjálfan og framkvæmdastjóra fótboltadeildar um hvort Sindri sé á förum erlendis.

Athugasemdir
banner