Barcelona vill fá Kane - Wharton efstur á lista Chelsea - Endrick lánaður til Lyon
   lau 03. apríl 2021 14:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Allardyce: Tættum Chelsea í okkur
„Við verðum ekki síðasir í röðinni í dag!" grínaðist Sam Allardyce þegar fultrúi Match of the Day, enska uppgjörsþáttarins, spjallaði við hann eftir 2-5 útisigur WBA gegn Chelsea í dag.

„Ég er hæstánægður með þennan sigur og við gerðum þetta með stæl. Gæðin í mörkunum okkar og boltinn sem við spiluðum varð til þess að við náðum í þessi frábæru úrslit. Við þurftum nauðsynlega á þessu að halda."

Chelsea komst í 1-0 en Thiago Silva fékk svo að líta rauða spjaldið. WBA skoraði næstu fjögur mörk áður en Mason Mount minnkaði muninn. Callum Robinson skoraði svo 5. mark WBA í uppbótartíma.

„Þeir misstu verðskuldað mann af velli. Silva hefði getað fengið beint rautt fyrir að rífa í Pereira. Ég hef nokkrum sinnum náð í úrslit með tíu menn inn á en við tættum Chelsea í okkur."

Matheus Pereira skoraði fyrsta og annað mark WBA í leiknum.

„Ég hefði viljað sjá Pereira ná þrennunni en það er kannski of gráðugt. Við þurfum að endurheimta nokkra menn úr meiðslum," sagði Allardyce að lokum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 11 8 2 1 20 5 +15 26
2 Man City 11 7 1 3 23 8 +15 22
3 Chelsea 11 6 2 3 21 11 +10 20
4 Sunderland 11 5 4 2 14 10 +4 19
5 Tottenham 11 5 3 3 19 10 +9 18
6 Aston Villa 11 5 3 3 13 10 +3 18
7 Man Utd 11 5 3 3 19 18 +1 18
8 Liverpool 11 6 0 5 18 17 +1 18
9 Bournemouth 11 5 3 3 17 18 -1 18
10 Crystal Palace 11 4 5 2 14 9 +5 17
11 Brighton 11 4 4 3 17 15 +2 16
12 Brentford 11 5 1 5 17 17 0 16
13 Everton 11 4 3 4 12 13 -1 15
14 Newcastle 11 3 3 5 11 14 -3 12
15 Fulham 11 3 2 6 12 16 -4 11
16 Leeds 11 3 2 6 10 20 -10 11
17 Burnley 11 3 1 7 14 22 -8 10
18 West Ham 11 3 1 7 13 23 -10 10
19 Nott. Forest 11 2 3 6 10 20 -10 9
20 Wolves 11 0 2 9 7 25 -18 2
Athugasemdir
banner