Fotbolti.net
03.04.21 - 18:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Arsenal og Liverpool: Firmino mættur aftur

Firmino byrjar.

Firmino byrjar.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er áhugaverður slagur í ensku úrvalsdeildinni eftir klukkutíma þegar Arsenal og Liverpool eigast við í London.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gerir fjórar breytingar frá 3-3 jafnteflinu við West Ham fyrir landsleikjahlé. David Luiz er meiddur og Pablo Mari fer á bekkinn. Rob Holding og Gabriel byrja. Dani Ceballos kemur þá inn fyrir Granit Xhaka sem er veikur og Nicolas Pepe byrjar fyrir Bukayo Saka sem er meiddur.

Emile Smith Rowe er ekki í leikmannahópi Arsenal vegna meiðsla og Rúnar Alex Rúnarsson er ekki heldur í hóp.

Roberto Firmino er kominn aftur hjá Liverpool eftir meiðsli og Diogo Jota byrjar á bekknum. James Milner kemur einnig inn í byrjunarliðið.

Fyrir leikinn er Liverpool í sjöunda sæti og Arsenal í níunda sæti.

Byrjunarlið Arsenal: Leno, Chambers, Holding, Gabriel, Tierney, Partey, Ceballos, Aubameyang, Odegaard, Pepe, Lacazette.
(Varamenn: Ryan, Bellerin, Willian, Soares, Mari, Nelson, Elneny, Nketiah, Martinelli)

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Phillips, Kabak, Robertson, Fabinho, Milner, Thiago, Mane, Firmino, Salah.
(Varamenn: Adrian, Wijnaldum, Kieta, Oxlade-Chamberlain, Jones, Jota, Tsimikas, Shaqiri, Williams)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal4+712
2Man City4+612
3Leeds4+48
4Hull City4+38
5Brighton4+87
6Chelsea4+17
7Brentford4+36
8Liverpool4+26
9Everton4+26
10Ipswich Town4-36
11Nott. Forest405
12Newcastle4-15
13Man Utd404
14Sunderland4-24
15Bournemouth4-13
16Crystal Palace4-53
17Tottenham4-52
18Fulham4-31
19Aston Villa4-61
20Coventry4-100
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.