Fotbolti.net
03.04.26 - 11:09
Brynjar Ingi Erluson

Fékk tvö hjartaáföll í morgun

Mircea Lucescu

Mircea Lucescu

Canon

Mynd: EPA

Mircea Lucescu, fyrrum þjálfari rúmenska landsliðsins, berst fyrir lífi sínu á spítala en hann fékk tvö hjartáföll í morgun. Þetta segir rúmenski blaðamaðurinn Emanuel Rosu á BlueSky.
Þjálfari Rúmena fluttur á spítala - Missir af kveðjuleiknum
TENGT EFNI

Þjálfari Rúmena fluttur á spítala - Missir af kveðjuleiknum

Lucescu gat ekki stýrt Rúmenum í seinni landsleiknum gegn Slóvakíu í landsleikjaglugganum eftir að hafa fallið í yfirlið stuttu fyrir flug.

Hann hefur verið á spítala síðustu daga í rannsóknum, en rétt áður en hann átti að vera útskrifaður fékk hann tvö hjartaáföll og er nú kominn á gjörgæsludeild spítalans.

Samkvæmt Rosu og öðrum rúmenskum fjölmiðlamönnum er ástand Lucescu stöðugt en hann er undir ströngu eftirliti læknateymisins.

Leikur Rúmena gegn Slóvakíu átti að vera kveðjuleikur þjálfarans, en hann sagði upp störfum í kjölfar veikinda sinna. Þetta staðfesti rúmenska sambandið í gær.

Lucescu er goðsögn í Rúmeniu, bæði sem leikmaður og þjálfari, en hann tók við rúmenska landsliðinu í annað sinn á ferlinum árið 2024 og stýrði því í umspil um sæti á HM þar sem liðið tapaði fyrir Tyrklandi í undanúrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.