Fotbolti.net
03.05.26 - 11:26
Elvar Geir Magnússon

Læti í göngunum eftir leik og Hemmi sakaður um að hafa gefið leikmanni KR högg

Hermann Hreiðarsson og Ástbjörn Þórðarson.

Hermann Hreiðarsson og Ástbjörn Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var hiti í mönnum eftir leik Vals og KR í Bestu deildinni í gær. KR vann erkifjendur sína 4-1 fyrir framan fullan völl og mikla stemningu.

Eftir leikinn voru læti í göngunum þar sem leikmenn KR sökuðu Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, um að hafa veitt Ástbirni Þórðarsyni, leikmanni KR, högg.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net sökuðu KR-ingar Hermann um að hafa kýlt í þindina á Ástbirni. Leikmenn KR voru augljóslega reiðir og hvöss orðaskipti áttu sér stað á göngunum.
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
TENGT EFNI

Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur

Hermann var ósáttur við dómgæsluna í leiknum og talaði um það í viðtali eftir leik að Ástbjörn hafi komist upp með að brjóta á leikmönnum sínum í gegnum allan leikinn. Strax eftir lokaflaut hélt Hermann lestur yfir Elíasi Inga Árnasyni dómara.

KR-ingar eru með fullt hús eftir fimm umferðir í Bestu deildinni en Valsmenn hefðu jafnað þá að stigum með sigri í leiknum í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.