Ansu Fati er ennþá með tvö ár eftir af samningi sínum við Spánarmeistara Barcelona en stórveldið ætlar að selja hann í sumar.
Fati hefur verið að gera fína hluti á láni hjá AS Mónakó í franska boltanum og er búist við að hann verði keyptur þangað.
Fati, sem er 23 ára, er kominn með 11 mörk í 28 leikjum í öllum keppnum.
Mónakó getur keypt Fati fyrir um 10 milljónir evra en Börsungar hafa engan áhuga á að fá kantmanninn aftur í sínar raðir útaf þeim háu launum sem hann er á. Háar launakröfur Fati gætu gert Börsungum erfitt fyrir að selja hann.
Fati þótti ein helsta vonarstjarna Barcelona áður fyrr en mikil meiðslavandræði eyðilögðu fyrir honum.


