Rúnar Kristins: Auðvitað er það pirrandi

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við, eftir frábæra frammistöðu í fyrri hálfleik, 4-1 og frábæra stöðu, að þá er ég vonsvikinn með hvernig við komum út í seinni háfleikinn. Eins og alltaf, við þjálfarar, leikmenn, það vita allir að það getur allt snúist í höndunum á manni ef maður mætir ekki fókusaður inn. Það er ekki vandamálið að við höfum ekki rætt það en við fylgdum því ekki eftir með okkar leik og okkar baráttu og hleyptum þeim inn í leikinn og fyrir vikið er ég bara sáttur með að við náðum allavega að klára þetta með sigri og fáum þrjú stig fyrir það og skorum fjögur mörk sem er gott en ósáttur við seinni hálfleikinn,“ hélt hann svo áfram.
Framarar hafa verið einhverjir óvæntustu skemmtikraftar sumarsins, fengið á sig fullt af mörkum sem þeir hafa ekki gert síðustu ár en á sama tíma skorað líka fullt að mörkum sem þeir hafa einnig gert lítið af. Þeir sem fylgjast með deildinni virðast sáttir með þetta, enda mikil skemmtun að fylgjast með liðinu, en hvernig metur þjálfarinn þetta?
„Já, auðvitað er það pirrandi fyrir okkur þjálfarana, við viljum helst fá sem fæst mörk á okkur en lykilatriðið er að vinna leikina og við erum að búin að ræða þetta núna, þetta er þriðja árið mitt hér og við höfum verið mjög öflugir að verja markið okkar á móten i höfum við þá skorað minna. Við höfum verið að reyna að finna einhvern stöðugleika, jafnvægi í því að geta skorað fleiri mörk en á sama tíma fengið fá á okkur en við virðumst ekki alveg ná því. Við náum allavega að skora mikið af mörkum sem er jákvætt en við erum að fá of mikið á okkur. Það er þetta jafnvægi sem maður en alltaf að leita að en ég held að það séu allir sáttir að sjá svona leiki þar sem að er mikið um færi og sóknarbolti spilaður, þó við höfum þurft að verjast megnið af síðari hálfleik þá gerum við fjögur frábær mörk í fyrri hálfleik og áður en við skorum fyrsta markið erum við búnir að fá þrjú mjög góð færi þannig að við erum sókndjarfir, við þorum fram og við erum bara að fá aðeins of mikið af mörkum á okkur sem að mér finnst við kannski ekki hafa verið að fá á okkur í fyrra og hittiðfyrra. Svona aðeins 'sloppy' þar finnst mér“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
