Fotbolti.net
24.08.26 - 22:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ágúst Orri: Elska fótboltann hérna

Ágúst Orri: Elska fótboltann hérna
Canon

Mynd: Excelsior

Ágúst Orri Þorsteinsson gekk til liðs við hollenska félagið Excelsior frá Breiðabliki í kvöld. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.

Hann var í viðtali sem birtist á heimasíðu hollenska félagsins í kvöld. Hann ræddi við marga áður en hann tók þessa ákvörðun. Nökkvi Þeyr Þórisson, Brynjólfur Willumsson og Kristian Nökkvi Hlynsson spila í hollensku deildinni og þá er Elías Már Ómarsson, leikmaður Víkings, fyrrum leikmaður Excelsior.
Ágúst Orri keyptur í hollensku úrvalsdeildina (Staðfest)
TENGT EFNI

Ágúst Orri keyptur í hollensku úrvalsdeildina (Staðfest)

„Excelsior sýndi mikinn áhuga á mér. Ég talaði við nokkra leikmenn sem spila í Hollandi og líka við Elías sem spilaði hérna. Þeir voru allir jákvæðir í garð félagsins og þjálfaranna. Þeir sögðu að þetta væri fullkomið skref fyrir mig á þessum tímapunkti," sagði Ágúst.

Ágúst telur að leikstíll Excelsior henti sér vel.

„Þetta er sterk deild með hátt tempó og mörgum góðum leikmönnum. Ég elska fótboltann hérna og held að hann henti mér vel," sagði Ágúst.

„Ég er hraður og vil pressa hátt. Þess vegna tel ég að leikstíll Excelsior henti mér vel. Ennfremur er ég mikill stríðsmaður og hata að tapa, ég vil gefa allt í þetta á öllum æfingum og í öllum leikjum, vinna eins mikið og hægt er og hjálpa liðinu."

Mark Ruijl, tæknilegur ráðgjafi Excelsior, tjáði sig um komu Ágústs.

„Það var vöntun á vinstri vængmanni eftir brotthvarf Gyan de Regt. Með hraða hans, sóknarhlaupum og beinskeyttum leikstíl passar Ágúst Orri vel við þann prófíl sem við vorum að leita að," sagði Ruijl.

Ágúst gæti spilað sinn fyrsta leik á laugardaginn þegar liðið fær Sparta Rotterdam í heimsókn í grannaslag. Nökkvi Þeyr er leikmaður Sparta.

Heimild: Excelsior

Ágúst Orri: Elska fótboltann hérna
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.