Fotbolti.net
24.08.26 - 22:41
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Ægir Jarl: Hann er betri núna en í KR

Auglýsing
Ægir Jarl Jónasson, leikmaður Fram

Ægir Jarl Jónasson, leikmaður Fram

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara þvílík ánægja að klára þennan leik,“ sagði Ægir Jarl Jónasson, leikmaður Fram, eftir 3-4 sigur á Blikum í Kópavoginum í dag í mjög kaflaskiptum leik. 

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 4 Fram

„Þetta var erfiður leikur og við byrjuðum hann frábærlega í fyrri hálfleik og svo bara, einmitt, í seinni er bara slökkt á okkur þegar við komum út og Blikarnir koma vel inn í leikinn og þjarma að okkur lengi en við stóðum storminn af okkur sem var bara frábært,“ hélt hann áfram.

Ægir Jarl, sem var fenginn til Fram í upphafi móts, hefur spilað vel í sumar og aðspurður hvort hann hafi búist við því að liðið yrði á þeim stað sem það er í dag, þegar hann gengur til liðs við þá, segir hann:

„Nei kannski ekki, maður veit náttúrulega ekki alveg við hverju maður á að búast við en ég vissi alveg að það bjó mikið í liðinu áður en ég kem og ég vissi að mér fannst ég geta bætt einhverju við liðið og mér finnst ég hafa náð að gera það. Einhvernveginn eru allir að róa í sömu áttog við erum bara búnir að vera mjög flottir í sumar og viljum halda því áfram restina af mótinu.“

Ægir spilaði með Kennie Chopart í KR í dágóðan tíma og í dag eru þeir liðsfélagar hjá Fram. Kennie skoraði í dag sitt tíunda mark í sumar, er þetta besta útgáfan af honum sem Ægir Jarl hefur séð?

„Já, ég held það. Já klárlega. Hann er betri núna en í KR allavega á þessu tímabili og hann er orðinn hundgamall þannig að, hann er búinn að vera frábær fyrir okkur í sumar.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.