Farið var með Sir Alex Ferguson á spítala fyrir upphafsflautið í leik Manchester United gegn Liverpool í dag.
Ferguson var mættur á Old Trafford þegar honum byrjaði að líða illa svo ákveðið var að heyra í sjúkrabíl. Ákvörðunin var tekin í fyrirbyggingarskyni til að tryggja öryggi goðsagnarinnar.
Allir fótboltaunnendur vita hver Ferguson er eftir stjórnartíð hans hjá Man Utd enda var hann við stjórnvölinn í 26 ár og náði ótrúlegum árangri með félagið.
Ferguson er 84 ára gamall og lenti í heilablæðingu fyrir átta árum síðan. Hann náði góðum bata eftir heilablæðinguna og opnaði sig um atvikið og bataferlið þremur árum síðar.




