03.06.05 - 13:00
Hafliði Breiðfjörð
Patrick Kluivert til Valencia (Staðfest)




Patrick Kluivert sem lék með Newcastle á leiktíðinni sem var að ljúka hefur samþykkt að ganga til liðs við Valencia en leikmaðurinn fékk að fara frítt frá Newcastle. Newcastle átti möguleika á að gera viðbótarsamning við leikmanninn til tveggja ára í viðbót en ákváðu að gera það ekki en Kluivert gerði aldrei neina alvöru hluti hjá þeim síðasta árið.
Félagaskipti Kluivert til Valencia velta á því að hann komist í gegnum læknisskoðun 9. júní. Hann kom til Newcastle á frjálsri sölu frá Barcelona síðasta sumar en var aðeins 14 sinnum í byrjunarliði hjá liðinu og skoraði sex mörk í deildinni. Í heildina var hann samt næst markashæstur með 13 mörk, 6 mörkum á eftir Alan Shearer.
Ef hann kemst í gegnum læknisskoðunina þá mun hann skrifa undir þriggja ára samning við Valencia en spænska liðið hefur einnig fengið til liðs við sig Brasilíumanninn Edu frá Arsenal.
Ef hann kemst í gegnum læknisskoðunina þá mun hann skrifa undir þriggja ára samning við Valencia en spænska liðið hefur einnig fengið til liðs við sig Brasilíumanninn Edu frá Arsenal.
