Fotbolti.net
03.06.20 - 20:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þýskaland: Þrjú skallamörk Frankfurt, Werder í veseni og Andri Rúnar ekki í hóp

Andre Silva skoraði fyrsta markið í kvöld.

Andre Silva skoraði fyrsta markið í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Werder 0 - 2 Eintracht Frankfurt
0-1 Andre Silva ('61 )
0-2 Stefan Ilsanker ('81 )
0-3 Stefan Ilsanker ('90 )
Lokaleikur 29. umferðar fór í dag fram á Weserleikvanginum í Bremen. Þar mætti lið Eintracht Frankfurt í heimsókn.

Bæði þessi lið lönduðu sigri um liðna helgi en Werder var í öllu verri stöðu í deildinni fyrir leikinn, í fallsæti og tveimur stigum frá umspilssæti.

Það var Andre Silva sem skoraði fyrsta mark leiksins og kom það á 61. mínútu eftir undirbúning Filip Kostic. Stefan Ilsanker bætti forystuna á 81. mínútu eftir fyrirgjöf frá Bas Dost. Fyrra markið var einnig skallamark.

Þriðja mark leiksins var einnig gestanna og innsiglaði það sigurinn. Ilsanker skoraði sitt annað mark á lokamínútu venjulegs leiktíma eftir fyrirgjöf Jonathan de Guzman, þriðja skallamark leiksins. Frankfurt er eftir leikinn í 11. sæti en Werder áfram í harðri fallbaráttu.

Ilsanker kom inn á sem varamaður og skoraði hann fyrra mark sitt einungis sautján sekúndum eftir að hann kom inn á völlinn. Það er fljótasta mark sem varamaður hefur skoraði í Bundesliga frá því mæingar hófust (2004-05).

Í 3. Bundesliga tók Kaiserslautern á móti 1860 Munchen og enduðu leikar með 1-1 jafntefli. Andri Rúnar Bjarnason var ekki í leikmannahópi Kaiserslautern en hann var heldur ekki í hópnum um liðna helgi. Kaiserslautern er í 12. sæti deildarinnar.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Augsburg000
1Borussia D.2+56
2Bayern2+46
2Bayer000
3Bayern000
3Hamburger2+36
4Borussia D.000
4Borussia M.2+14
5Borussia M.000
5Hoffenheim2+14
6Eintracht Frankfurt000
6Freiburg2+14
7Elversberg000
7Schalke 041+23
8Freiburg000
8Hannover1+13
9Hertha203
9Hamburger000
10Hoffenheim000
10Stuttgart2-13
11Koln000
11Wolfsburg2-23
12Augsburg2-11
12Mainz000
13Paderborn000
13Eintracht Frankfurt2-11
14RB Leipzig000
14Bayer2-21
15Schalke 04000
15Mainz2-20
16Wolfsburg34-2429
16Koln2-30
16Stuttgart000
17Union Berlin000
17Heidenheim34-3126
17RB Leipzig2-30
18Werder000
18Werder2-30
18St. Pauli34-3126
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.