Fotbolti.net
03.06.25 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kelleher í Brentford og Flekken í Bayer Leverkusen (Staðfest)

Caoimhin Kelleher.

Caoimhin Kelleher.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brentford hefur fest kaup á markverðinum Caoimhin Kelleher. Hann kemur frá Liverpool er kaupverðið um 18 milljónir punda.

Kelleher hefur síðustu ár verið einn besti varamarkvörður ensku úrvalsdeildarinnar, ef ekki bara sá besti.
Hákon tekur stöðuna eftir verkefnið - „Auðvitað vil ég spila hverja helgi"
TENGT EFNI

Hákon tekur stöðuna eftir verkefnið - „Auðvitað vil ég spila hverja helgi"

Hann mun fara í samkeppni við Hákon Rafn Valdimarsson en líklegt verður að teljast að Kelleher sé hugsaður með aðalmarkvörður enda keyptur á mikinn pening.

Á sama tíma er Mark Flekken, sem hefur verið aðalmarkvörður Brentford síðustu ár, farinn til Bayer Leverkusen á 10 milljónir evra.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Leverkusen sækir eftir að Erik ten Hag tók við liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.