Fotbolti.net
06.05.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ganverjarnir í aðlögun í Vesturbænum

Ganverjarnir í aðlögun í Vesturbænum
Canon

Mynd: KR

Í janúar samdi KR við tvo Ganverja, þá Fuseini Issah (2005) og Fredrick Delali (2007). KR hóf í vetur samstarf við Field Masters akademínua í Accra í Gana og komu Ganverjarnir úr þeirri akademíu.

Fuseini Issah hefur þegar spilað átta leiki með venslaliði KR, KV, sem spilar í 3. deildinni. Hann er sóknarmaður sem skoraði tvö mörk í Lengjubikarnum í vetur.

Fredrick Delali er djúpur miðjumaður sem hefur spilað níu leiki með 2. flokki KR sem spilar í A-deild Íslandsmótisns.
KR semur við tvo Ganverja (Staðfest)
TENGT EFNI

KR semur við tvo Ganverja (Staðfest)

Fótbolti.net spurði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, út í Ganverjana eftir sigurleik KR gegn Val á laugardag.

„Þeir eru bara í aðlögun, annar þeirra er í KV og spilaði í dag (laugardag) gegn KÁ í sterkum sigri í 3. deildinni. Hinn er að spila með 2. flokki, þetta tekur bara tíma. Við erum ekki stressaðir og erum ekki að pressa á þá og þeir þurfa að fá að lenda almennilega áður en þeir geta látið til sín taka hjá okkur, en vonandi gerist það," sagði Óskar.

Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.