Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Þjálfari Japans: Ekki gera sömu mistök og Ísland
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Matthías Már
Mynd: EPA
Ísland tapaði vináttulandsleik gegn Japan um helgina með einu marki gegn engu, en eina mark leiksins var skorað þegar Íslendingar voru leikmanni færri.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gerði skiptingu seint í leiknum þegar staðan var enn markalaus og var Kristian Nökkvi Hlynsson alltof lengi að koma sér af vellinum.

Dómari leiksins ákvað að fylgja nýjum reglubreytingum fótboltaheimsins og leyfa leiknum að halda áfram án þess að skiptingin fengi að klárast. Niðurstaðan varð sú að Kristian fór útaf en Ísak Snær Þorvaldsson fékk ekki að koma inn strax.

Tíu Íslendingum tókst ekki að verjast Japönum svo sigurmarkið leit dagsins ljós og var Arnar óhress að leikslokum. Hann sagðist ætla að senda kvörtunarbréf til FIFA útaf nýju reglubreytingunum.

   01.06.2026 07:30
Arnar Gunnlaugs skýtur á FIFA


Samkvæmt reglubreytingunum hafa leikmenn aðeins tíu sekúndur til að koma sér af vellinum og þá hafa verið settar reglur um tafir í innköstum og markspyrnum.

Ef leikmaður er of lengi að fara af velli þarf sá sem kemur inn í staðinn að bíða í minnst eina mínútu til að fylla í skarðið og í millitíðinni leika samherjarnir manni færri.

Hajime Moriyasu þjálfari Japan telur þetta atvik eiga að vera hans mönnum víti til varnaðar.

„Strákarnir stóðu sig vel með nýju reglubreytingarnar, þeir fóru eftir þeim," sagði Moriyasu. „Þetta eru breytingar sem geta breytt ýmsu við fótboltaheiminn og það er mikilvægt að leikmenn séu meðviðtaðir. Við verðum að passa að brenna okkur ekki á nýju reglunum til að gefa andstæðingunum ekki tækifæri á að skora hjá okkur."

57 ára Moriyasu ræddi einnig um mikilvægi vatnspásanna sem verða í boði í sumar. Þar verður mikilvægt að koma taktískum skilaboðum áleiðis á meðan leikmenn vökva sig.

„Við verðum að undirbúa okkur eins vel og við getum. Þessar þrjár mínútur sem við höfum í vatnspásu geta reynst gríðarlega mikilvægar."

Japan er í erfiðum riðli á HM í sumar ásamt Hollandi, Túnis og Svíþjóð.

   31.05.2026 12:26
Vináttulandsleikur: Naumt tap gegn Japan


Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner