Fotbolti.net
03.07.05 - 07:25
Magnús Már Einarsson

Maxi Rodriguez til Atletico Madrid (Staðfest)

Maxi var hress í læknisskoðuninni hjá Atletico.

Maxi var hress í læknisskoðuninni hjá Atletico.

Canon
Atletico Madrid hefur keypt argentínska framherjann Maxi Rodriguez frá Espanyol. Maxi sem er 24 ára var markahæstur hjá Espanyol á síðustu leiktíð með 15 mörk.
Hann getur spilað bæði á kantinum eða sem fremsti maður en Maxi sem á níu landsleiki að baki var í leikmannahópi Argentínu í Álfukeppninni.

Atletico keypti Mateja Kezman frá Chelsea fyrir nokkrum dögum og þá hefur Carlos Bianchi tekið við liðinu af Cesar Ferrando og er ætlunin að gera mun betur en á síðasta tímabili þegar að Atletico endaði í 12.sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.