03.07.05 - 13:23
Magnús Már Einarsson
Pellegrino til Alaves (Staðfest)

Pellegrino yfirgaf Liverpool fyrr í sumar.


Pellegrino yfirgaf Liverpool fyrr í sumar.

Argentínski varnarmaðurinn Mauricio Pellegrino hefur gert samning við Deportivo Alaves sem vann sér sæti í La Liga á Spáni í vor. Pellegrino sem er 33 ára yfirgaf Liverpool í sumar eftir að hafa komið til liðsins frá Valencia í janúar.
Pellegrino lék alls 12 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Liverpool en hann gat ekki spilað með Liverpool í Meistaradeildinni þar sem hann hafði leikið með Valencia í keppninni.
Alaves skýrði ekki frá því hversu langur samningurinn er á heimasíðu sinni.
Alaves skýrði ekki frá því hversu langur samningurinn er á heimasíðu sinni.
