Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   fim 03. júlí 2025 12:02
Elvar Geir Magnússon
Síðustu skilaboð Jota til eiginkonu sinnar
Diogo Jota gifti sig í júní.
Diogo Jota gifti sig í júní.
Mynd: X
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margir eru í áfalli eftir þær skelfilegu fréttir sem bárust í morgun. Fótboltamaðurinn Diogo Jota, leikmaður Liverpool og portúgalska landsliðsins, lést ásamt bróður sínum í bílslysi á Spáni rétt eftir miðnætti í gærkvöldi.

Daily Mail fjallar um síðustu opinberu skilaboðin sem Jota sendi eiginkonu sinni, Rute Cardoso, en það var í gegnum Instagram þar sem hún hafði birt myndir frá brúðkaupi þeirra sem fram fór í Porto í síðasta mánuði.

„Draumur rættist" skrifaði Cardoso og Jota svaraði þeim ummælum: „En það er ég sem er sá heppni."

Parið hafði verið saman síðan 2012 en þau voru saman í skóla í Porto þar sem þau kynntust. Cardoso fylgdi manni sínum vel eftir og var reglulega á leikjum hans.

Þau áttu saman þrjú ung börn; synina Dinis (2021) og Duarte (2023) og dóttur sem fæddist 2024. Nafn hennar hefur ekki verið opinbert.

André Silva, bróðir Diogo Jota, lést einnig í slysinu. Hann var atvinnumaður í fótbolta hjá portúgalska B-deildarliðinu Penafiel og var 25 ára.
Athugasemdir
banner