Fotbolti.net
03.07.26 - 10:45
Elvar Geir Magnússon

Klopp lýsir yfir vilja til að taka við Þýskalandi

Allt stefnir í að Klopp verði næsti landsliðsþjálfari Þýskalands.

Allt stefnir í að Klopp verði næsti landsliðsþjálfari Þýskalands.

Canon

Mynd: EPA

Það stefnir allt í að Jurgen Klopp verði næsti landsliðsþjálfari Þýskalands. Þýska fótboltasambandið hefur staðfest að það hyggist fara í viðræður við Klopp eftir að Julian Nagelsmann sagði upp störfum.

Í yfirlýsingu frá sambandinu segir að Klopp hafi þegar lýst yfir vilja til að verða næsti landsliðsþjálfari Þýskalands.

Klopp er 59 ára og er fyrrum stjóri Mainz og Borussia Dortmund en er þekktastur fyrir stjóratíð sína hjá Liverpool þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina 2020.
Nagelsmann hefur sagt upp (Staðfest) - Tekur Klopp við?
TENGT EFNI

Nagelsmann hefur sagt upp (Staðfest) - Tekur Klopp við?

Julian Nagelsmann sagði starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari Þýskalands, eftir vonbrigðin á HM. Paragvæ sló Þýskaland út eftir vítakeppni í 32-liða úrslitum.

Í gær var greint frá því að Nagelsmann hefði farið á fund með stjórn þýska fótboltasambandsins þar sem honum hafi verið boðið að segja upp, ef hann gerði það ekki yrði hann rekinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.