Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   þri 03. ágúst 2021 08:00
Victor Pálsson
Koeman: Erum svo ánægðir með Memphis
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Barcelona, er afar ánægður með byrjun hollenska vængmannsins Memphis Depay hjá félaginu.

Memphis eins og hann vill láta kalla sig hefur byrjað undirbúningstímabilið vel og er búinn að skora tvö mörk til þessa í fyrstu tveimur leikjunum.

Memphis kom til Barcelona á frjálsri sölu í sumar en hann kemur frá Lyon þar sem vel gekk.

„Það er gríðarlega erfitt að verjast Memphis en fyrir utan það þá hefur hann komið hingað fullur af hungri til að sýna eigin gæði. Við erum svo ánægðir," sagði Koeman.

Koeman er Hollendingur líkt og Memphis og spilaði sá síðarnefndi með hollenska landsliðinu á EM í sumar.

Memphis gæti spilað stórt hlutverk með Barcelona í vetur og miðað við orð Koeman eru menn spenntir fyrir því sem koma skal.

Athugasemdir
banner
banner
banner