Fotbolti.net
03.09.22 - 21:07
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Barca fór létt með Sevilla

Spánn: Barca fór létt með Sevilla
Canon

Mynd: EPA

Sevilla 0 - 3 Barcelona
0-1 Raphinha ('21)
0-2 Robert Lewandowski ('36)
0-3 Eric Garcia ('50)

Barcelona heimsótti Sevilla og tók sunnlendingana í kennslustund. Börsungar sýndu mikla yfirburði í leiknum og leiddu með tveimur mörkum í hálfleik.

Nýju leikmennirnir Raphinha og Robert Lewandowski skoruðu mörkin og hefði forskotið hæglega getað verið stærra ef Ousmane Dembele og Jules Kounde hefðu ekki farið illa með dauðafæri undir lok fyrri hálfleiks.

Raphinha fylgdi misheppnaðri marktilraun eftir með skalla af stuttu færi og Lewandowski skoraði eftir frábæra sendingu frá Kounde úr vörninni.

Kounde lagði annað mark upp í upphafi síðari hálfleiks þegar hann skallaði boltann til Eric Garcia, sem skoraði af stuttu færi, eftir hornspyrnu.

Börsungar hefðu getað bætt við en gerðu ekki og varð niðurstaðan sannfærandi 0-3 sigur. Barca er í öðru sæti með tíu stig eftir fjórar umferðir. Sevilla hefur farið hrikalega illa af stað og er aðeins með eitt stig.

Sjáðu klúðrið hjá Dembele.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla10017
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna10-1011
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.